Vísa? Gerist alveg ringaður af tralli og veltur út af þræðinum.
.
.
Jújú B.Ewing minn vísa/staka/ljóð er það vissulega, en margar eru útfærslurnar „braghættirnir". Hér leitum við að svari við þeirri spurningu. Þ.e. nafni bragháttarins sem gæti haft þessa taktskipan.
Eigum við að giska á Breiðhendu?
Eigum við að giska á Breiðhendu?
.
Tekur trommusóló Og það vaaaarrrr RÉTTTTTT
Jibbí... ókey, hér er ein... hvaða háttur er þetta?
Háttur þessi hefur nefndur verið,
fyllir varla kvæðakver,
kann ég vart að yrkja hér.
Er þetta ekki bara afbrigði af Stuðlavillu eða Vikhendu eins og hún er nefnd hér og víða?.
Vissulega afbrigði, en þessi háttur hefur fengið spes nafn...
Nei þetta er ekki rétt há Riddaranum....er þetta ekki stuðlafall?.
Jú... stuðlafall er það... Skál...
Er þessi þráður að deyja... eða ætlar Heiðglyrnir að halda honum gangandi?
Hvað bragháttur uppfyllir þessi skilyrði:...Frumlínur (2) eru stýfðar og 7 atkvæði en síðlínur(2) eru ekki báðar stífðar og hafa ekki sama atkvæðafjölda.
Hef ekki grænan grun... veit þetta einhver?
Hef ekki grænan grun... veit þetta einhver?
.
Þetta er nú öllu einfaldara en virðist svona við fyrstu sýn. Hmmm.
Kannski stikluvik?
Kannski stikluvik?
.
OG Það er HÁRRÉTT Billi minn bilaði.
Úps.
Eitthvað verður maður að gera.
Hvers konar háttur er þetta? (Ég veit það ekki sjálfur, en langar að vita það.)
Hátíð ársins hefst nú brátt
hef ég grun þar verði kátt.
Gestapóagaman.
Galdramenn með gítarspil
gestum skemmta af og til
syngja allir saman.
(Þetta er undir sama lagi og "Krummi svaf í klettagjá...")