Ég skil ekki hvernig ég gat gleymt þessum þræði. Ég sem er svo minnugur að meðaltali.
En staðalfrávikið?
Ekki veit ég það. En samanlagt minni mitt er enn meira en meðaltalsminni mitt Ljómar upp
Merkilegt. Nú man ég ekkert eftir því að hafa sagt þetta um samanlagða minnið. Kannski er minnið mitt bara búið að leggja sig.
Ég skil bara ekki í þessu sveiflukennda minni mínu. Nú man ég allt í einu aftur eftir að hafa í gær sagt eitthvað um samanlagt minni Klórar sér af ákafa í hattinum
Aftur á móti minnir mig að meðalminni meðalmanns sé minna en meðalminni meðalmín.
Og nú minnir mig endilega að ég hljóti að hafa gleymt að taka meðölin mín.
Vitleysa var þetta í mér, ég þarf ekkert svoleiðis sull. Ég man það alveg greinilega.
Hérna Texi minn, fáðu þér nokkrar. Réttir fram glas með marglitum töflum
Á þig geta áhrifin bara verið jákvæð, að meðaltali.
Tínir doppóttu töflurnar úr
Þessar eru langbestar. Áttu ekki meira af þeim?
Bryður töflurnar af áfergju
Hvernig stendur á að ég var að bryðja þessar töflur? Ég þarf ekkert svoleiðis!
Jú núna þegar ég er orðinn gamall. Allir sem eru orðnir sex ára verða að muna að taka töflurnar sínar.
Réttir Texa fullan haldapoka af ,,doppóttum" töflum
Hérna vinur, Blesatöflur handa þér!
Drepur tittlinga framan í Blesa
Gefur Blesa töflurnar
Annars vissi ég ekki að hrossið væri veikt.
Horfir áhyggjufull á Blesa
Horfir áhyggjufullur á Texa
Er hrossið bleikt?
Hann Blesi minn? Hann er eins og hann á að sér.
Nú er Blesi orðinn ofboðslega veikur. Hvað hafið þið gert? Blótar herfilega og rífur hár sitt Brestur í óstöðvandi grát