Þrífur tærnar á Hvæsa með hrjúfri kisutungunni
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Vera glaður kálfur, ekki tína gleðinni.
Sleikja tærnar.
Það er þá annað hvort ekki týna gleðinni.... eða ekki tína gleðina.
Starir þegjandi út í loftið
Hmm... þýðir það að ég fái blómin eða ekki?
Klórar Hvæsa í höfðinu
Hættu að gera ý og í villur!
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Hættir að rífa hár sitt og rífur í hárið á Hvæsa í staðin
Rífur í... nei annars..
Heldur áfram að hárreyta Hvæsa
Hann hlýtur þá í raun að heita Hvæsy... Starir þegjandi út í loftið
Hann hlýtur þá í raun að heita Hvæsy... Starir þegjandi út í loftið
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Hvað er svona fyndið ?
Ha ?
Ha ?
Er þetta eitthvað Disc Rosa djók ?
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Hvaða hvaða hvæsy, þær eru bara eytthvað skrýtnar. Tygra er strýðyn og Hexya er prakkary!
Sko ég held að þú vitir hver Don Rosa er, án þess að gera þér grein fyrir því.
Eða kannski ekki hver hann er, en þú þekkir pottþétt sögurnar hans.
Þær eru alltaf teiknaðar brjálað nákvæmar... allar sögurnar af Gullgraftrar árum Jóakims eru teiknaðar af Don Rosa.. og margar fleiri sögur.
Hann notar mjög oft, eða nánast alltaf alvöru heimildir í sögunum sínum... og oft þegar Jóakim og Andrés fara að leita að fjársjóði, þá er þetta eitthvað sem alvöru sögusagnir eru til um, eða e-ð sem vitað er að var til.
Það hafa meira að segja verið gefnar út bækur bara með Andréssögum eftir hann:
Hlustar og lærir af Tigru
Mig langar svo að verða betra nörd.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Fer og leigir starwars og lord of the rings
Ef þú umgengst okkur nógu mikið er það bara tímaspursmál.
Ljómar upp