Stunda engin stulðahrip
stuða aldrei rassa
fæ mér bara flottan grip
Fender Jazzins bassa
Heldur kýs ég Dýra-John
en draslið Massey Ferguson.
Í blautum aur og blindri hríð,
í brattri hlíð og roki stífu,
er búmönnum og bæjarlýð
best að aka Lödu Nivu.
Ef eykst þér fýla og ferlegt kíf,
og finnst þú engu þora,
dragður þá upp dósahníf
og drífðu í þig ORA.
stalst til að lagfæra fyrripartinn lítillega...
Prýðir nef þitt bálrauð bóla?
Bjátar sífellt e-ð á?
Sá, sem drekkur Coca-Cola
er kúl svo mjög, sem vera má.
Ef gripinn er mikilli maníu
moka ég skít upp á Scaniu.
Í kórnum vil ég syngja sóló,
sætast þykir Prins og Póló...