Ef ég fæ að gera textann þá er lítil hætta á að þú verðir útundan Tina.
Byrjaðu að semja góði.
Ég skal smíða lagið.
Glottir ógurlega
Ég skal gera lag... það verður ekkert svona helvítis köntrípolkaprump eins og síðast.
Bara nógu andskoti rokkað. Glottir viðbjóðslega
Þá þurfum við að ráða okkur trommuleikara...
ER EINHVER TRUMBUSLAGARI UM BORÐ Í SKIPINU?
nei... það verður ekkert framsóknarsánd í þessu sko
Ja, eina sem ég kann að tromma er Bananaphone...
Við getum svosem samið textan í kringum það ágæta lag..
Trommar
♪♪♪♪Blút blút blút blút blút blút blút.. Og skálum svo
Blút blút blút blút blút blút blút.. Og skálum núúúú
♪♪♪Þú þekkir blútinn
komum á lútinn
Skálum nú saman alveg í botn Botn♪♪♪♪
♪♪♪♪Blút blút blút blút blút blút blút.. Og skálum svo
Blút blút blút blút blút blút blút.. Og skálum núúúú♪♪♪
♪♪Ívar er Drukkinn
Og Galdr´er hnugginn
Því hexía fór með kakópottinn INN...♪♪♪
Glottir eins og fífl
Ég fer hér með formlega fram á að gleðin verði haldin fyrir 15. október eða eftir 15. nóvember.
Það gefur mér mánuð til að koma króganum í heiminn og sjálfri mér í kjól !
flissar eins og kjáni
Já sko, mér finnst bara asnalegt að halda árshátíð án mín og Limbra.
Þið ráðið svosem hvort þið viljið vera lúðar.
Setur hönd upp að enni og myndar L með þumli og bendiputta
Ell!
Beygir bendiputta nokkrum sinnum í röð
-úðar!
Já sko, mér finnst bara asnalegt að halda árshátíð án mín og Limbra.
Þið ráðið svosem hvort þið viljið vera lúðar.
Þá verðið þjer að tilkynna opinberlega hvort og hvenær þið verðið á landinu. Óvinir ríkisins eru nefnilega enn of fjölmennir í Danmörku til að óhætt sje að halda árshátíð þar (svo er það hugsanlega líka of dýrt) Ákveður að verða lúði gerist það nauðsynlegt.
Þá þurfum við að ráða okkur trommuleikara...
ER EINHVER TRUMBUSLAGARI UM BORÐ Í SKIPINU?
Ég barði bumbubassatrommu sundur og saman í eina tíð. Ljómar upp og rifjar upp bomm.. bomm.. bommbomm.. bomm.. .. bomm.. bomm. bommbomm.. bomm..
Væri ekki kjörið að halda árshátíðina í austrinu þar sem sólin rís.
Nei ertu frá þér? Við förum nú ekkert að vakna snemma til að mæta á einhverja asnalega morgunárshátíð! Fussar og sveiar
Árshátíðir eru á kvöldin, og þessvegna eiga þær að vera í vestri þar sem sólin sest!
Er ekki hægt að halda þetta þegar L-in tvö koma til landsins?
Er ekki hægt að halda þetta þegar L-in tvö koma til landsins?
Hafa komið fram formlegar upplýsingar um hvenær það verður ? Vjer bentum nefnilega á aðeins ofar í þræðinum að það er of hættulegt að halda árshátíð í Danmörku vegna þess hve óvinir ríkisins eru fjölmennir þar.
Nei, mér vitanlega hafa þau ekki gefið það út hvenær þau koma til Stormskers.
Hættum nú þessu rugli og dettum bara´i það !
xTxTxTxTxTxTxTxTxTxTxTxTxTxT
Já ég skal sko mæta á þá drykkjusamkomu.Ljómar upp