Það þýðir nú lítið að nota milt fyrir barnið á bleyjurnar hans Hvæsa; prófaðu háþrýstidæluna á þetta fyrst.
Hér með óska ég auðmjúklegast eftir stimpli í vegabréf svo ég megi teljast fullgildur íbúi Baggalútíu.
Skúrar gólf og syngur hástöfum til dýrðar sér reyndari mönnum, grípur svo þvottabretti, bala, og Milt fyrir barnið og hefst handa við að þrífa föt Hvæsa og skiptir yfir í lofsöng til hæstvirtrar Ritstjórnar. Straujar svo allt heila klabbið, brýtur saman og pakkar inn í lofttæmda poka, keypta í Rúmfatalagernum.
Hvar er svo þessi Eskimóastelpa sem ég á að skjóta?
Mikið óskaplega sýnist mér þetta vera húsvanur köttur.
Hér með óska ég auðmjúklegast eftir stimpli í vegabréf svo ég megi teljast fullgildur íbúi Baggalútíu.
Skúrar gólf og syngur hástöfum til dýrðar sér reyndari mönnum, grípur svo þvottabretti, bala, og Milt fyrir barnið og hefst handa við að þrífa föt Hvæsa og skiptir yfir í lofsöng til hæstvirtrar Ritstjórnar. Straujar svo allt heila klabbið, brýtur saman og pakkar inn í lofttæmda poka, keypta í Rúmfatalagernum.
Hvar er svo þessi Eskimóastelpa sem ég á að skjóta?
Það hefur þó ekki láðst að láta þig vita að dvalarleyfi krefst þriggja stimpla? Þegar Hvæsi hefur stimplað, sem hann getur auðvita ekki gert nema þú sýnir bláan stimpil fyrst (þegar því er lokið er þó ekki gott að segja hvenær hann gerir það, því hann hefur lengi trassað að endurnýja blek í stimpli sínum, sem keyptur var fyrir mörgum árum, og blek þarf að panta frá Svíþjóð.) Þegar þessu hefur verið skilmerkilega framfylgt þarftu að fá rauðan stimpil, sem fæst á skrifstofu ráðuneytis, en hvað það heitir er ekki leyfilegt að gefa upp við ótínda útlendinga. Þú getur þó auðveldlega fengið þær upplýsingar þegar þú hefur sótt um bráðabirgða landvistarleyfi hjá umsýslunni, til þess þarftu einungis að sýna stimpil frá Hvæsa, svo það er vissara að tala við hann strax.
Ekki má heldur gleyma kakóprófinu.
Setur kakóbolla fyrir framan Hertogann
Hér með óska ég auðmjúklegast eftir stimpli í vegabréf svo ég megi teljast fullgildur íbúi Baggalútíu.
Skúrar gólf og syngur hástöfum til dýrðar sér reyndari mönnum, grípur svo þvottabretti, bala, og Milt fyrir barnið og hefst handa við að þrífa föt Hvæsa og skiptir yfir í lofsöng til hæstvirtrar Ritstjórnar. Straujar svo allt heila klabbið, brýtur saman og pakkar inn í lofttæmda poka, keypta í Rúmfatalagernum.
Hvar er svo þessi Eskimóastelpa sem ég á að skjóta?
Það hefur þó ekki láðst að láta þig vita að dvalarleyfi krefst þriggja stimpla? Þegar Hvæsi hefur stimplað, sem hann getur auðvita ekki gert nema þú sýnir bláan stimpil fyrst (þegar því er lokið er þó ekki gott að segja hvenær hann gerir það, því hann hefur lengi trassað að endurnýja blek í stimpli sínum, sem keyptur var fyrir mörgum árum, og blek þarf að panta frá Svíþjóð.) Þegar þessu hefur verið skilmerkilega framfylgt þarftu að fá rauðan stimpil, sem fæst á skrifstofu ráðuneytis, en hvað það heitir er ekki leyfilegt að gefa upp við ótínda útlendinga. Þú getur þó auðveldlega fengið þær upplýingar þegar þú hefur sótt um bráðabirgða landvistarleyfi hjá umsýslunni, til þess þarftu einungis að sýna stimpil frá Hvæsa, svo það er vissara að tala við hann strax.
Þess má geta, að blái stimpillinn er í eigu Dons De Vito, en hann hefir eigi sézt í þónokkra tíð.
Það hefur þó ekki láðst að láta þig vita að dvalarleyfi krefst þriggja stimpla? Þegar Hvæsi hefur stimplað, sem hann getur auðvita ekki gert nema þú sýnir bláan stimpil fyrst (þegar því er lokið er þó ekki gott að segja hvenær hann gerir það, því hann hefur lengi trassað að endurnýja blek í stimpli sínum, sem keyptur var fyrir mörgum árum, og blek þarf að panta frá Svíþjóð.)
Þó mun sá galli á gjöf Njarðar að eigi er unnt að fá bláan stimpil nema með því að sýna stimpil frá Hvæsa, svo og vottorð í sjöriti til staðfestingar því að blái liturinn sje nákvæmlega rjettur.
Einhverjar líkur eru á að þetta kalli á reglugerðarbreytingu því hjer virðist að vissu leyti um e.k. Catch 22 ástand að ræða.
Nú fer andskotinn að kalla ömmu sína ýmsum nöfnum...
Starir þegjandi út í loftið
..þar sem færni minni í kerfisfræðilegum klækjum er verulega ábótavant og ég hef takmarkaða trú á frændum vorum Svíum, er bara eitt í stöðunni:
Sest og fær sér kakó
Sáttur er ég við að vera áfram óstimplaður, ef það þýðir að ég get tekið upptökupróf í kakódrykkjuxT
Þarsem þessi nýliði er einkar viðkunnalegur við fötin mín og gólfið sé ég ekkert því til fyrirstöðu að hann fái tímabundið dvalarleyfi á meðan reynslutíma stendur.
Þessi stimpill mun veita þér fullan rétt til þátttöku á gestapó þartil DonDevito kemur með sinn stimpil.
Stimplar vegabréf nýliðans með nýja Hello kitty stimplinum sínum
Þetta vegabréf er þó aðeins gilt á reynslutíma sem ég mun ákveða síðar hvað verður langur.
Skrifaðu nú nafnið þitt allstaðar þarsem er "x"á þennan litla samning og farðu með hann til hæstvirts forseta, Vladimir Fuckov.
Kemur inn með 440kg blaðastafla með "X" á 546 stöðum
Var þetta allt og sumt? Engar þrautir, engir hrekkir? Það er greinilegt að Hvæsi er orðinn of linur nú í seinni tíð.
Óskar eftir ítarlegri úttekt á tengslum og venslum Hertogans og Hvæsa
Þegi þú Kargur, þú hefur ekki atkvæðarétt hérna því þú glímar einsog stelpa.
Hann þvoði fötin mín og skúraði gólfið og er bara mjög kurteis þessi.
Það er nákvæm formúla sem ég fer eftir, t.d ef nýliðar byrja setn.á litlum staf, eða nota tvípunktursvigilokast og þetta lol, þá verða þrautirnar meiri og flóknari.
Stimplar nýliðann aftur til að leggja áherslu á mál sitt
lol-ar
Ljómar upp
Hvílík gleði! Takk fyrir stimplanir yðar, Hvæsi, kann ég vel að meta þær.
Tekur sér fjaðurpenna í hönd, og hefur undirritunarferli samnings...
Lýkur síðustu undirritun samnings undir vökulu auga 523 fulltrúa frambjóðenda til Stjórnlagaþings, og afhendir hæstvirtum Vladimir Fuckov. Tekur svo 4 hringi í þrautabraut Skólahreysti og stráir teiknibólum í sætið sitt til að Kargur geti ef til vill verið sáttari við magn þrauta og hrekkja.
Stimplar sig inn
Halló halló, hvað er að frétta? Ég sé að það bara búið að skúra hérna útum allt og voða fínt. Flott flott. Annað er hinsvegar að segja um bókhaldið maður! Hristir tóman sparibaukinn sinn og lauflétt veskið Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Kæri hertogi af einhversmannslandi, mér sýnist þú vera búinn að skrúbba allt og skúra fyrir Hvæsa, fylla út eyðublöðin hans Vlads og fara út að leika með Kargi. Allt er það gott og gilt, en ég get þó ekki ennþá séð að þú sért búinn að skila inn réttu pappírunum!
Heldur áfram að handfjatla tómlegt veskið
Kemur inn á sviðið, dragandi þungt koffort með tilheyrandi látum
Heill og sæll, meistari Don De Vito! Ég var einmitt að fá þennan kistil í ábyrgðarpósti frá nígerískum kauða sem ég hef verið í samskiptum við og aðstoðaði við að losa arf eftir konungborinn föður hans undan þarlendum skattayfirvöldum. Hann er uppfullur af alls kyns fjölþjóðlegum pappírum, merktum tölum og með myndum af frægu fólki. Ég hafði ekki hugmynd um hvernig ég gæti nýtt þessi skjöl, en þau liðka ef til vill fyrir innflutningsferlinu?
Gleymir koffortinu hjá Don De Vito og bregður sér á snyrtinguna.
Hmm já. Strýkur á sér þykka mars-mottuna, tyllir gleraugunum framar á nefið og skoðar ofan í koffortið varlega
Tekur upp seðlabúnt úr koffortinu og þefar duglega af því, brosir sínu breiðasta þegar hann finnur af því peningalykt
Hehe, djöfull hefuru náð að svindla á þessum nígeríugaur maður!
Nær í stimpilinn
Jæja, komdu með ennið! Eða bíddu, vildirðu kannski brennimerkingu á rassinn frekar?
Sækir steikjandi heitt járnið úr arineldinum og otar að hertoganum Það er miklu huggulegra!
Ljómar upp Huggulegt skulum við hafa það!
Íhugar að ná í nokkrar Parasetamól til að undirbúa sig, en gerir sér svo grein fyrir að þetta er mikilvægasta augnablik tilveru sinnar og ætti ekki að minnka upplifunina á nokkurn hátt. Sýnir stoltur beran kúlubossann.
LÁTTU VAÐA!