Garbo er góð við kindur. Samt ekki á einhvern óeðlilegann hátt.
Nermal er voðalega góður, voðalega er þarna í jákvæðri merkingu.
Regína er umburðarlynd og þolinmoð og kippir sér ekki upp við það að Úlfamaðurinn sé endurborinn í Sannleikanum.
Kargur er myndarlegur skeggjaður maður sem ratast oft satt orð á munn, svo er hann líka af góðum ættum.
Dula tekur flestum kvenhetjum Íslendingasagnanna fram þegar kemur að hugrekki og visku.
Hvarvetna sem Garbo kemur við auðgar hún nærveru viðmælenda sinna.
hvurslags gefur villiköttum mat.
Ef Garbo væri regnbogi væri hún tvöfaldur regnbogi, slík er hennar dýrð og dásemd.
Anna Panna kann að skanna annarrra manna granna.
Ofan á allt það lof sem Rgína hefur verið hlaðin hér á þessum þræði, (sem hún ber með rentu), vil ég bæta því við að hún er sérlega orðhagur setningasmiður.
Garbo er alveg einstaklega græn í dag.
woody er alltaf brosmild.
Billi er alltaf jafn glöggur í kyngreiningu.
Woody er dugmikill drengur