Upprifinn gerir fábrotið líf vesalinganna sem byggja útnárann sem hann býr í þolanlegra.
Offari kann að meta stórkostlega mannkosti Upprifins.
Kargur sér frekar ástæðu til að tala fallega um mig en Offara, enda snillingur.
Offari og Kargur eru hvor öðrum skemmtilegri. Það væri hver sveit stórsæmd af að hafa þá báða á þorrablóti.
offari veit allt sem vert er að vita um bíla... eða svona hér um bil allt.
Upprifinn er gangandi alfræðiorðabók og ótæmandi viskubrunnur.
Línbergur er alræmt gáfumenni.
Það er enginn jafn kurteis og Kargur.
Duli er besti einkaþjónn í heiminum.
Offari er fagurkeri og lífskúnstner.
Upprifinn er í samfélagi okkar hér á Baggalút eins og hvítur flibbi og manséttur á verkamanni í kolanámu.
Úbbi er Baggalútnum nauðsynlegri en gagnvarpið sjálft.
Huldra er með skemmtilega langar hendur.