Meinarðu að skilyrðin ættu að vera að allir eigi að daðra við alla?
Hér eru bara allir á blýföstu og orðnir algjörlega náttúrulausir Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann En það má alltaf daðrasendir þjónana sína til Forsetans með asnahalahanastélskokteil í fagurkóbaltbláu glasi
Allir? Brestur í óstöðvandi grát Varð ég þá ein eftir? Brosir fallega gegnum tárin og reynir að finna einhvern sem er ekki á blýföstu og þar með náttúrulaus.
Varðandi umræður hjer að ofan þá höfðum vjer í nýlegu innleggi hjer helst í huga hvort ekki þyrfti að stofna Daðureftirlitsstofnun Baggalútíu eða eitthvað hliðstætt, m.a. því einhverja Gestapóa vantar eflaust embætti og allskonar svoleiðis.
Allskonar? Ljómar upp
Ég er enginn aumingi !Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Veifar augnhárunum, og sveiflar makkanum. Ætlar ekki einhver að bjóða Madömmunni í glas?
Spýtir í lófana og sleikir hárið aftur
Hellir smá slurk úr blútglasinu sínu í yfirgefið tómt glas á borðinu og rennir því til Maddömmunar
De rien madame.
Daður og daður... alltaf hatað nafnið á þessum þræði. Hljómar eins og eitthvað sem despó kélla myndi segja eftir deit.
Sigga, segðu nú hvað gerðist?
Bara... daður og daður.
Sem minnir mig á það þá er mér líka illa við orðið gaffall... gaffall, gaffall. Ósjarmerandi orð.
Því miður (eða (eftir því hvernig litið er á málið) sem betur fer) hafa einungis þráðarstofnandi og vissir friðargæsluliðar (þó eigi vjer) möguleika á að breyta nafni þráðarins. Eigi hafa þó fram komið formlegar tillögur um nýtt nafn.
Ætlar ekki einhver að bjóða Madömmunni í glas?
Skv. Gestapóhandbókum væntanlegrar daðureftirlitsstofnunar er beiðni þessi óæskilega tvíræð þar eð eigi er augljóst hvort þjer viljið komast ofan í glas eða fá drykk ofan í glas. Fyrrnefndi möguleikinn verður þó að teljast mun líklegri enda í meira samræmi við stórhug þann er einkennir alvöru Gestapóa Kemur með þriggja metra hátt glass og stiga vegna fyrri möguleikans en til öryggis líka með glas í venjulegri stærð ásamt fagurbláum drykk ef svo ólíklega vildi til að tilvitnað innlegg snerist um seinni möguleikann.
Kannske vildi hún einvörðungu eifaldlega komast í glas, þó eigi væri glasið.

Þú kannt aldeilis að heilla dömurnar herra krú ég meina herra forseti.
Hrökklast afturábak og hrasar við
Í strangtrúarríki eins og margir hafa áhuga á að gera Baggalútíu að telst daður að sjálfsögðu ósiðsamlegt. Var því í umræddu innleggi eingöngu farið að ströngustu tilmælum væntanlegrar daðureftirlitsstofnunar.
Sest við barinn og fær sér dýrt koníak
Eru nokkuð lauslátu píurnar okkar stungnar af ?
Sest við barinn nálægt Hvæsa Já, þær skruppu.
Stendur upp og andvarpar
Ó jæja þá nenni ég ekkert að hanga hér.
Kímir Þú kemur nú samt á árshátíðina, er það ekki?