Þetta vissi ég ekki að tíðkaðist hér. Fer að grúska í safninu
Fyrst ég hef ekkert teiknað nýlega birti ég bara gamlar myndir!
Ljómar upp
Hérna er sjálfsmynd sem ég teiknaði þegar ég var 14-15 ára:
Ég hef aðeins verið að reyna að mynda viðarsúluna í Friðey, og er að þreifa mig áfram í öllum þessum stillingum á myndavélarskrípinu.
Hér með Sólfarið í forgrunni.
Stærri útgáfa
~ ~ ~
Og með hér Viðey og Esjuna í bakgrunni.
Stærri útgáfa
Vá. Djöfulsins snilld. Sérstaklega þessi seinni.
Vá. Djöfulsins snilld. Sérstaklega þessi seinni.
Takk Tigra, þú ert líka snilld.
Hvað helduru að maður hafi tíma fyrir svoleiðis, skólinn á fullu.
Hef varla teiknað strik eða málað dropa síðan í september.
Hinsvegar gætu verið að aðrir séu duglegri en ég.
Litla... ertu ekki alltaf að taka myndir?
Bíður spennt
Það er nú eitthvað minna um þessar mundir...en ég hef verið að taka eitthvað, aðallega af froskinum okkar Limbra..honum Fræ.
Hann er aðeins búinn að stækka síðan seinast.
Haha æj hvað hann er sætur!
Flottur lime-græni liturinn. Góðir kontrastar.
Þessi þráður er vanræktur.
Hérna er e-ð sem ég haskaði af fyrir jól. Nóvember minnir mig. Þurfti að fá smá útrás áður en prófin byrjuðu.
Djöfull er þetta töff. Vildi að ég væri svona hæfileikaríkur.