Hvernig væri nú að fá ferskeytlu?
Ferskeytlu þið fáið hér
fremur innantóma.
Yrkja skal á eftir mér
oddhendu með sóma.
Já! Odhenda skal það vera!
Mér dettur ekkert yrkisefni í hug annað en sukk og svínarí
Sukk ég flý og svínarí
sjáist ský á lofti.
Heim á ný úr blautum bý
með bragð sem slý í hvofti.
Yrkja skal eina þríliðalanglínu (a.m.k. 60 atkvæði) um krullu (e. curling).
Körling er andkotans íþrótt sem fávitar stunda
ekki mun prófa það helvíti, frekar ég dey
Það er gert fyrir þá ljótustu , hálfvita, hunda,
og heimskingja , örvita, fávita mellur og grey
Ég sver það-íþrótt þá stunda ég ei
Er þetta löglegt ´?
En allavega... Orkt skal um jakkaföt..helst vikhendu.
Armani úr ull og silki finn hér
hanga nú á herðatré
henta í galadinner
Má ég biðja um stúfhent um haustið
Kólnar nú og kvöldar, það er komið haust.
Við kulda er það ekki laust.
Limra um sjálfsmorð.
Ég snöru að hálsinum herði
og hjarta mitt gata með sverði,
af stólnum svo stekk
í sortann þá sekk;
ég lífsgæðin lítt tel það skerði.
Afdrátt næst, takk.
Erfiitt og ljótt en verð að lífga þráðinn.
Sauðinn sá
sólin.
Auðinn á
ólin.
Næst má yrkja um helvíti ( ef fólk tekur þetta innlegg mitt gilt ) Gjarnan 2-3 vísur.
Til að halda lífi í þræðinum er rétt að koma með helvítis vísu...
Í helvíti er heitt og fínt
og hlutverk flestir eiga.
Þar við giska getum týnt
gómi við að teiga.
Þar er kreppukuldi frá
og kannske líka Dabbi.
Vín er ávallt vont að þrá
Virðingafyllst:
.........................Skabbi
Eigum við þá ekki að yrkja undir Kolbeinslagi?
Kátur yrki Kolbeinslag
og kannski svo gagaraljóð.
Næsti á að yrkja' í dag
um ægilega vergjarnt fljóð.
Hún Fjóla var alltaf á iði
(einkum á lendum og kviði).
Hún var blíðlynd og blaut
um sitt brosmilda skaut
og best undir fótboltaliði.
og áfram í þessum anda: næst um stúlkurnar á Internetinu!
Þegar ég á ' þessu og hinu '
þukla fer
gellurnar á gagnvarpinu
gagnast mér.
Næst skal yrkja um eftirlætissælgæti.
Finnist mér ég fari að hangsa,
fæ ég mér með hraði:
glassúrsnúð og gúmmíbangsa
og glás af súkkulaði.
Næsti skal yrkja um Elton John
Elton John sem enginn mun
eyða'í krónu.
Félagans er fall og hrun
í feitri jónu.
Næst skal yrkja braghendu um ris og fall Sovétríkis.
Meinarðu ekki Sovetríkjanna örugglega?
Sovétríkin, 22 þau tóku'að rísa
en 91 þau féllu og fóru
fögru Sovétríkin stóru.
Nú skal yrkja hringhenda vikhendu.
Til að fljóðum fari af G- strengir.
væna góða vikhendu
vilja óðir drengir.
Er þetta ekki í lagi.
Nú skal yrkja Kolbeinslag þar sem rímið er A - B - B - A
Ég hélt að Kolbeinslag þyrfti alltaf að vera með víxlrím. klórar sér í höbbðinu