Um vetrartímann vill hún rísa
en voða lítið gengur.
Þá er súr hér sólarkrísa,
og sekkur bara lengur.
Næst vil ég fá kvæði um lazyboy, helst braghendu en ekki skilyrði...
Ekki braghent en valhent sem er næsti bær við....
Ekki stend ég upp þótt sé í einum spreng,
framar ei um gólf ég geng,
góð er vist í Letidreng.
Hurðardrátt skal yrkja, efnið er frjálst.
Þá prófa ég hurðardrátt í fyrsta skipti...
Hefur þú í heilagt klósett, hlandgult litið
gulbrún slikja gáðu drengur
getur þú í klósett skitið?
Næst má einhver yrkja limru um saklausan glæp...
Er þetta rétt? (Annars vegar venjulegur, og hins vegar miðskárímaður.)
Hurðarskellir hélt að fengist hægur dráttur,
hinum megin hespuloku;
hafði smokkinn ansi sáttur.
Skelegg mærin skartaði þó skírlífsbelti.
Heldur varð þá hörðum pilti,
hált í sýnu kynlífssvelti.
Upp á fjöll nú aftur laumast aumur sveinninn
Gildur er þó gleðipinninn,
gefur losun holur steinninn.
Næsta efni ekki alveg tilbúið: Starir þegjandi út í loftið
Of seinn. Gott að Skabbi var á undan, þá þarf ég ekki að hugsa upp nýja þraut.
ætíð til verka skal vanda
og vel í fæturna standa
það er engin synd
úr einhverri lind
að drekka vel lagaðan landa
næst á að yrkja ferskeytlu um Enter.
Enter trylltan vista varð
á viðeigandi hæli
Allar Karmel-systur sarð
svei mér þá, ég æli.
Hver verða örlög hans? Svarið því eftir eigin höfði.
Uppi á krossi Enter hangir
eins og fyrri spámenn.
Svíða hann með sóðatangir
sérþjálfaðir blámenn.
Bjargast loks því beitt er tunga.
Biskup nær að glýja.
Syndaaflausn semur þunga:
Sonatorrek nýja.
Getum við fengið drápu um það hvaða uppfyndingar myndu líta dagsins ljós í samvinnu Vilhjálms Vandráðs og Sveppagreifans?
Þetta er búið að vefjast fyrir mér alltof lengi svo ég skýt á það...
Kannske gátugeislablysagammabyssa?
Yrði varla hérna hissa,
ef hyrfi síðan þessi skissa.
Höfum það einfalt núna, mjög einfalt... næst skal búa til óskreytta ferskeytlu um sleypiefni...
Ef þér gengur ekki neitt,
inn að setja gandinn.
Sleipiefnið fáðu feitt,
frestast þar með vandinn.
Hver getur gert auglýsingu í bundnu máli fyrir nýstofnaða ástarlífsbúð?
Ef að gengur ekki neitt
og allt er hreint í pati
þá getum vanda bætt og breytt
í búðinni Í réttu gati.
Nú skal yrkja um nýliða að eigin vali.
Þrír athygglisverðustu nýliðar hér.
Úlfamaður endalaust
eykur þráðaflóru
Hér'ann gleður Harald aust
hefur enga glóru.
Napur Kristján níundi
nasistinn er ljótur
Tekur brátt við tíundi
taktu við hér fljótur.
Siggi er hér sætastur
sæta myndin lokkar,
langtum best hér bættastur
bætir hópinn okkar.
Nú væri gaman að fá eitt ljóð um salernisferð.
Ennþá ég man þessa mögnuðu ferð,
mjógörnin herptist í farti.
Föl verður sjónin ei fyrir neitt verð,
fagur var kúkurinn svarti.
Þó verð að segja að lyktin var ljúf,
sem lundur á ágústsins degi.
En áferð á skítnum var skrítin og hrjúf,
er skeindi mig, best að ég þegi.
Þorir einhver að gera sléttubönd? Efnið frjálst...
Það má alltaf prófa.
Trúin getur flutt hér fjöll
fremur spjöll og kvelur,
Frúin mín oft tekur tröll
temur hún og elur.
Elur hún og temur tröll
tekur mín oft frúin,
Kvelur spjöll og fremur fjöll
flutt hér getur trúin.
Næst vill ég limru um einhvern Gestapóann.
Sigurður Úlfmanninn særði,
sjóðbandvitlausan hann ærði
limanna lesti,
líflát á hvesti,
geimverur grikkinn til kærði.
Gaman væri nú að fá klifaða stafhendu...
Er ég rölti suður með sjá
sjá þar mátti hringaná.
Náði ég henni öllu úr
úrill varð og heldur súr.
Næst vil ég sjá kveðskap með sviðslýsingum og sértáknum þeim sem gestapóum er boðið upp á.
Á bekknum situr gamall gaukur
Glottir eins og fífl
Ættar- hann er ljótur laukur
Ljómar upp sá skítahraukur
Næst væri gaman að fá rímu í afdráttarhætti.
Hlær eins djúpum hlátri og unnt er
Hendir frá sér vellíðunarstunu
Skransar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Skrítinn klórar sér í höfðinu
Æ, of seinn.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Blótar herfilega og hár sitt rífur
hæðir sínar stekkur og tekur dívur
Strunsar út af sviðinu
og svífur eftir liðinu
Hrökklast aftur á bak og hér um svífur
Of seinn.