Hér málum við yfirvararskegg á skáldskapargyðjuna.
Nóttin hefur níðst á mér
nú eru augun þrútin
snemma því á fætur fer
og flýti mér á Lútinn.
Við það verða augun hörð
við það batna manni strax
betra er en bænagjörð
Baggalútur að morgni dags.
Heyrðu snöggvast Sauron minn
snjallur vinur kæri
heldurðu ekki að hringinn þinn
ég hermannlega bæri?
Lyngs við bing á grænni grund,
glingra og syng við stútinn.
Þvinga ég slyngan hófahund,
hringinn í kring um Blútinn.
Margur er skauð og skortir brauð,
skrimtir í nauð á blúti,
En betri er dauði en afla auð
úti á rauðum klúti.
Fyrr skal kýrin falla dauð,
Fargað dýrum hrúti,
en meira pýri ég rauðu í rauð,
rauðs á mýrarblúti.
Fyrr var oft á Kötu kátt,
karlar hana' að framan
fóru í og fengu drátt,
fannst það öllum gaman.
Upp í rúmi urðu þar
einatt skrítnar sögur.
Þegar saman safnast var
sumarkvöldin fögur.
Stóð mér útí rigningu, stóð mér útí sjó
stórar komu torfur, af loðnu var þar nóg
Blésu þær á trompetta, bar þá einn ég leit
bjöllusauðir langdrukknir voru þar á beit.
Við skulum ekki fíla fót,
er fer í skuðið trega.
Hjakkast það þó hart sem grjót,
hress er trúboðslega.
Sigga litla systir mín
situr ein við barinn.
Er á full´að selja sig
sú er illa farin.
Sáuð þið hana Siggu mína - að neðan -
sitja lömb og klippa gull - á meðan -
hún fer að engu óð - fleðan -
er öllum mönnum góð - héðan.
Þið getið svo flett því upp hvað er að klippa gull!
Fletta upp hvað? Sá karlmaður sem veit ekki hvað er að klippa gull ætti að snúa sér aftur að lego kubbunum. Jæja áfram með lagfæringarnar!
Erla graða Erla
ég ætl´að ríða þér.
Svíf þú inn í svefninn
á somadril frá mér.
:.:Ég klæði þig úr kjólnum
því kjóllinn fyrir er.:.:
Úti biðu aular
öllum hópnum stóð
Bjarni slær þá Bæring
blautt er orðið fljóð
:.:Erla heyrðu Erla
nú ertu trítilóð:.:
Ég vil rifja upp sem sagt var á gamla Lútnum:
Drekkum vínin djöful fín,
uns dofnar sýn og mildast.
Staðan brýn því lán hjá LÍN,
læst í skríni gildast.
...og svara því:
Þó að grikk þér geri LÍN,
ger ei lykkj'á vegi þín,
dragðu nikku, drekktu vín,
döndli þrykkt'í rjóða hlín.
Gamlar auglýsingar eru gulls ígildi:
Tilbúna drykki á Blútnum vér brögðum,
og byrjum að njóta þess bezt’ er í lögðum.
Því eitt hef ég frétt,
sem eflaust er rétt,
vor framtíðarnæring er falin, því þögðum.
Þú sannfærist fljótt um hve saftin er mild,
að soðningin gerjast af hreinustu snilld.
Og bruggi þeir pottrétt
Er bragðið svo pottþétt
Við bjóðum þér vímu á Blútnum, að vild.
TORO!
Kenndu mér að sleikja rétt
og hvernig á að ríða þétt
Þú færð í laun minn brunda yl
það er allt sem ég á til
Undir jóla-hjóla-tré er krakki
Undir jóla-hjóla-tré er voðalega stór krakki
Í latex galla
og mammogpabbi glotta bæði í kampinn
út í bæði.
Út í jóla hjóla bæ slær Gugga
Út í jóla hjóla bæ slær hún Gugga svipu á rauðan bossann minn,
með gól og görgum
og mammogpabbi bíða út í bílnum
algert æði...
Þetta orti ég og vinnufélagi minn um þann þriðja, mann að nafni Auðunn
Jóla Auðuninn, jóla Auðuninn
Ættlar að komí kveld
Með poka af illsku
og spúa eldi
og éta lítil börn
Það er sko skelfing þegar hann kemur
Þá svo hræðilegt er
Jóla Auðuninn
Illi mannskrattinn
Étur nú börnin frá þér......
Afi minn og amma mín
upp á Grund þau ríða
eru bæði sveitt og fín
og dauðanum ei kvíða
Afi minn og amma mín
út á bakka ríða
Þau eru bæði feit og fín
feigðinni ei kvíða