Þetta er nýr þráður fyrir þá sem eru leiðir á gömlu þráðunum og vilja eitthvað nýtt og ferskt.
blandar bollu og setur Bowie á fóninn
Já, svakalega er þetta nýmóðins og kósí þráður. Æðislegt!
Klappar saman höndunum af spenningi og hrifnæmi
Vááá, hann er allt öðruvísi heldur en hinir! heldur varla vatni yfir nýja þræðinum
Labbar um þráðinn og skoðar vandlega
Sniðug lausn hjá þér! Hvar fékkstu þessi orð? Rosalega flott áferð á þeim.
Já takk fyrir það krakkar. Ég er bara svo frumleg og fersk sjálf að ég þarf ekkert að hafa fyrir þessu!
lætur renna í vodkafótabað
Vá, flottur... Hlammar sér í sófa Ég ætla að hanga hér.
Ættum við að fara í einhverja svala samkvæmisleiki?
FÖRUM Í FLÖSKUSTÚT!!!!!!
Gerist hikandi
Ööööh ...
Man eftir því að Ugla er ógeðslega kúl og trendý
Já! Endilega! Svalt!
Lítur í kringum sig og sér að allir hinir eru farnir
Öööh ... ég ... gleymdi dálitlu úti í bíl.
Hendist út
Flöskustútur getur endað illa... meira að segja MJÖG illa.
Roðnar og laumast út
Ekki fara krakkar!
Sá sem flöskustúturinn lendir á á að fara úr öllu nema sokkunum!
snýr flöskunni
Sér að stúturinn endar á honum
Nei! Ég neita!
Ég er í ljótum sokkum.
Jæja ... en ekki segja að ég hafi ekki varað ykkur við.
Tekur niður sín gleraugu svo hann sjái engan horfa á hann
Meiri vitleysan ...
Rífur af sér leppana og stendur í engu nema heiðgulum sokkum með svörtum doppum
Jæja - eruð þið ánægð? Hvað næst? Hýðingaleikur?
Svakalega ertu loðinn Þarfi! Ertu líka svona frá ökkla og niðrúr?