Stappað get ég stuðlaberg
og stráð í kaffibollann
einnig tel ég eyrnamerg
ansi mikið hollann.
Langaði að yrkja í sama anda og hvurslags
Vatnið ei um vetur frýs,
að vori kólnar heldur skjótt.
Brumar oft að hausti hrís.
en hríðar sumrið lemja ótt.
Hundar dansa tangó,tjútt
tönnum gnýstir bátur,
maurar oftast kallast krútt
köttur uppisátur.
Vetrardekkin viljum slétt,
vatnið rekka mettir.
Blauta sekki berum létt,
brjóta hlekki kettir.
Gestapóið banna ber,
brýtur grjótið aldrei gler,
Baggalútur leiðist mjer,
litur grænn ei fagur er.
Eifaldur og einhuga
einfari er Texi
einfaldari en ein fluga
einmana í sexi.
Kynlíf kætir enga snót
Kettir nautin berja
Egginn hafa eðal rót
Ekkert siglir ferja
Stoltur refur í róður fer
ræður lamb á bátinn,
mót vindi rebbi bagsar ber
brosir þá lambi státinn.
Eitt í einu lamb og ljón
lætur ,svín í bátinn,
urðu síðar heiðurs hjón
hæg og mjög vel látinn .
Sólin köld á himni hvað
í höfunum kýrin dvelur.
Er að prenta fréttablað,
blindafullur selur.
Nærgætin var negrabók
nýttist hún til fræðslu
Alldrei fjölda skarann skók
og skapaði ei hræðslu.
Skrýðist kisi prestsins kjól
kræfur syngur messu.
Snjótittkingur fanta fól
fölur varð af þessu.
Strúturinn flýgur fugla hæðst
fær er hann að smíða,
færni í þessu reindar ræðst
röngu megin hlíða.
Sólin dvelst á himni hátt,
himinn bjartur, vindur hlýr.
Bjórinn færir mönnum mátt,
málið fagurt, hugsun skýr.
Gamall hrafn á barinn braust
bægslast þar með kríu
þar augafullur skarfur skaust
skrækir, klukkan tíu .
Músin hefur fögur hljóð
hræðist ostin mjúka.
kisa semur lög og ljóð
læknar einnig sjúka.
Hvorki drekk ég bjór né brenns,
en brillera í golfi.
Öfugmælin meika sens
ef maður snýr á hvolfi.
Upp til heiða fiskur flaug
fæðu þar hann leitar.
Gripinn fengur í smugu smaug
smurðar loðnur heitar.
Krúsídúllan krútt mest hjer,
kenndi Ivan Pavlov
Hann var skírður vitum vjer,
Vladimir É. Fuckov.
Strúturinn flígur fugla hæðst
fær er hann við smíðar.
Á tófu og fálka rjúpan ræðst
rösk um allar hlíðar.
Þessi vísa eftir lappa er líklega með þeim betri sem eftir hann hefur birst.
Af víni bragðið vont er af
og vísast ætti að banna.
Allt sitt Nenni níski gaf
til nirflasamtakanna.
Aldrei lýgur Villi Vill.
Vamm sitt má hann ekki vita.
Á bloggi Össur Chilly-chill.
Chillar og engan yfir dritar.