Loftið hér nú lítið er
loftræstingin biluð
Dauður er nú desember
dottin ég nú í'ðað hér.
hér í bulli hjakka menn
halda að séu klárir
0ffari er nýddur senn
nauðgað verið hefði í denn.
hér í bulli hjakka menn
finnst þeir vera klárir
0ffari er nýddur senn
nauðgað verið hefði í denn.
...heimskir þykjast klárir
núll-fari er níddur senn... ?
Denni hann var dæmalaus
Á dekki reif hann kjaftinn
Óþarft þótti allt hann raus
Áhöfnin hann burtu kaus
Kosið hafði karlinn ei
klárlega hann vildi
steypa ríkisstjórn í hey
stórkostlega flott - en nei.
Neinum segi nætur-mál
nema kannski guði.
Hann einn skilur bræði' og brjál
er bruggar ákaft þessi sál.
Sálir manna set í poka
sauma fyrir opið
djúpa holu má ég moka
í moldu fá þeir senn að doka.
Dokafleka dæli í
drullumjúkri steypu.
Léttblendi ég læt þar því
loftprufan fór fyrir bí.
Bendir Geöffviðnum góðfúslega á a stikluvikin eiga að enda á stúf.
Bíaði mig allan út
O´ní þrónna rann ég
Ég hef lent í lifrargrút !!
Lánaðu mér vasaklút.
Vasaklútur vöknaði
(vegna hvers er óljóst);
en kona nokkur klökknaði,
& klúturinn smá-dökknaði.
Dökknað hefir útlit allt,
óhrjálegt í heimi,
lítið gaman, lánið valt,
langt til jóla, blautt og kalt.
Köld mun helgin, kólnar enn,
-kasti hita- seinkar.
Teyga staupin tvisvar þrenn,
tafarlaust þá hitna menn.
Menning byrjar oft með "Ó"
úti í raunheiminum.
Harla sjaldan held ég þó
hér á voru Gestapó.
Gestapóar gamna sér
og gleypa sterka drykki.
Sumt þá hratt til fjandans fer
ég fæ mér bara sjenever.
Sjeneverinn sagður er
svanna gera óða
einatt ber þá un'ég mér
undir verinu með þér
Með þér magnað væri líf
í mjúkum sængurverum.
Fyrirgef minn stóra stíf
er stefnir beint í loving víf
Með þér magnað væri líf
í mjúkum sængurverum.
Fyrirgef minn stóra stíf
er stefnir beint í loving víf
Vænleg & fín vísa, en því miður er snemmstuðlað í fyrstu línu. Betra hefði verið e-ð á þessaleið:
Með þér væri magnað líf
í mjúkum sængurverum.
Fyrirgef minn stóra stíf
er stefnir beint í loving víf
- EÐA -
Með þér vil ég vera, mær;
mjögsvo, vel & lengi.
Þínar fögru tindil-tær
töfra mig & seiða nær.
Þráðinn má svo spinna áfram útfrá hvoru lokaorðinu sem er...
Einmitt það Z. Natan Þakka þér fyrir ábendinguna.
Næringin er nauðsynleg
í neðra jafnt sem efra
Mettunin í munninn, ég
mæti á hinn besta veg.