Hafið þið séð þættina þarna, æ - þessa brezku? Helvíti góðir... a.m.k. fínir, jæja þokkalegir.
Æ, ég veit það ekki, þeir er alla vega svona lala.
Ég er alls ekki sammála, mér fannst þeir barasta alveg hundleiðinlegir, þótt að söguþráðurinn og leikararnir hafi verið helvíti skemmtilegir.
Ég er alls ekki sammála, mér fannst þeir barasta alveg hundleiðinlegir, þótt að söguþráðurinn og leikararnir hafi verið helvíti skemmtilegir.
Tjah, ertu alveg viss?
Já, en samt ekki alveg því að sumt var gott þarna en samt frekar slæmt sko þannig að...
Tjah, þegar betur er að gáð voru þeir bara lélegir, eða a.m.k. ekkert sérstakir. Við erum að tala um "matador" er það ekki?
Nei, var það ekki Monopoly? Eða hvað?
Ágætt skemtun en alveg hrútleiðilegt efni.
Ég er alveg 100% sammála því þótt að ég sé ekki alveg sammála þessu með hrútleiðinlega efnið.
er það?
Ja, sko, þannig er...eða...nei...tja og þó...vissulega sjónarmið...eða þannig.
Sko það gerir ekkert til eða kannski má það ekki og svo er það náttúrulega spurning um hvað hinum finnst eiginlega er kannski best að spyrja þá.
Hakuchi, þarna erum við sámmála, eða. a.m.k. þú, veit ekki með mig.... eða þig
Það má vera að við finnum sameiginlegan flöt á þessu máli, mögulega. Kannski. Eða hvað?
Þetta er mest spurning um að vera viss.
Hvað er í gangi hér? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Þetta er ofur einfalt, að hver sem er sér það. Annars væri þetta ekki svo snúið nema vegna flækjunar.
Hakuchi, þarna erum við sámmála, eða. a.m.k. þú, veit ekki með mig.... eða þig
Það má vera að við finnum sameiginlegan flöt á þessu máli, mögulega. Kannski. Eða hvað?
Ég er handviss um að ég sé sammála ykkur báðum þarna. Það er að mestum hluta til. Eða í það minnsta nokkuð - smávegis... Ehmm. Sammála öðrum en ekki hinum - man þó ekki hvorum.