Herta fitan hjartaflćđiđ
hindrar, samkvćmt Dönskum.
Banna skulum Banafćđiđ:
Borgara međ frönskum.
Um naeturnar get ég ei sofid
af áhyggjum svefn hef ég rofid.
Pví mín elskada pjód.
Svo saklaus og gód.
Saekir svo óspart í klofid.
Illa er fariđ íslenskt mál.
Er ţađ nú í leyni?
Uppi á tungli ein fann sál
óákveđinn greini.
DeCode skođar genin góđ.
Gögnunum var stoliđ!
Jesúm vilja grilla á glóđ;
en Guđ á bak viđ ţetta stóđ.
(Jú, viđ skulum beygja alla Jésúa...)
Má í vetur marga sjá
mása í hitabraelum.
Ei finnst lengur fróni á
frost á hitamaelum.
Á Rás 2 var veriđ ađ segja frá ţessu félagi (sjá hlekki) og hvernig stofnandinn gat snúiđ sérvisku í samfélag:
Skýjaglópar skammir fá
er skyggnast upp í hvolfiđ heiđa.
En bjartur himinn brýtur vá,
bćtir skap og forđar leiđa.
Sýniţörfin svakaleg.
Sjónvarp neđan bringu.
Barniđ kom um blóđsins veg
í beinni útsendingu.
Jćja, nú geta blessuđ dýrin fengiđ blessun í kirkjum landsins, eins og sjá má á ţessari frétt.
Dýrin vil knúsa í klessu
og klappa ţeim liggjandi á sessu.
En finnst ţađ nú flott,
svo frelsandi og gott,
ađ fara međ Snata í messu.
Leiđréttingar og ađrar ábendingar um formiđ eru vel ţegnar, enda er ţetta mín fyrsta tilraun til limru. Rođnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfiđ
Ţađ er bara ekkert viđ ţetta ađ athuga.
Brosir út ađ eyrum og lyftir báđum höndum upp fyrir höfuđ til merkis um ađ sér hafi ţótt ţetta afskaplega fyndiđ
Fínt ţeir hafa fundiđ svar
viđ fjárlaganna halla.
Bretinn núna býsna snar
berst mjög hart gegn skalla.
Helst til mikiđ holdiđ er
sem hleđst á breska kalla.
Ţeir hugsa kannski: Fitan fer
er finnum ráđ viđ skalla.
Sjá frétt, í bland viđ ţá síđustu.
Fitan vex en háriđ hverfur,
hjá ţeim bólgnar magi.
Í UK bara eru herfur,
allt er ţví í lagi.
Fyrirgefđu fjórtán sinnum,
fjandans ţorstinn kvelur.
Međ köldum bjór viđ kverkar brynnum
ef komumst viđ í felur.
Smella máttu kossi á kinn
og kertaljósin mćra.
En ef ţú nefnir aldur minn
ţig óđar skal ég kćra.
Ráđherrarnir ríkissjónvarpsrukkanirnar
árum saman gleymdu ađ greiđa.
Glötuđ dagskrá veldur leiđa.
Ekki er ráđ nema í tíma sé tekiđ,
ţó tilkynning ţessi sé dálítiđ sjokk.
Svo mannkynsins framgangi ţrjóti ekki ţrekiđ
viđ ţurfum ađ stofna hér ísaldarflokk.
Útreikningar mínir nú sannlega sýna,
í súginn brátt fer allt á jörđ.
Verđur ţađ undarleg ógeđsleg pína,
er yfirgef sportbrautargjörđ.
Skandinava skelfir nú
ađ skćđum fjölgar vargi.
Er ţađ slćmt, ţó er mín trú
ađ Úlfamađur ţví bjargi.