Ef þú gefur öðrum mat,
ögn þú hefur bætt þig.
Góðvild sefa, góbla khat.
Get án efa kætt mig.
Ég vil ræða Magma málið.
Má ég fræða þig?
Ég vil ræða Magma málið.
Má ég fræða þig?
Ef þú snæðir ausukálið
upp það glæðir mig.
Það er erfitt um að spá
hvort allir hverfi héðan.
Það er erfitt um að spá,
hvort allir hverfi héðan
Að oss sverfur allir sjá
utan kerfis fleðan.
Lady Ga-Ga langar mig
að leiða' á A-A fundinn.
Lady Ga-Ga langar mig
að leiða' á A-A fundinn.
Hún án vafa virðir þig
og vill án tafa skund'inn.
Ísinn hef ég alltaf þráð,
aldrey tef ég við hann.
Ísinn hef ég alltaf þráð
aldrey tef ég við hann.
Í bragðaref var raspi stráð
Ég rym og slefa og bryð 'ann
Ég missti sjónar af góðum gildum
og gerðist róni í Mosfellssveit
Ég missti sjónar af góðum gildum
og gerðist róni í Mosfellssveit.
Þar með dónum, dáldið skildum,
drottins þjónum, er á beit.
Finnast andans merkismenn
máske handan lífsins?
Finnast andans merkismenn
máske handan lífsins?
Er bruggun landans ekki enn
endir fjandans kífsins?
Gillzenegger garmurinn
gekk á vegg um daginn
Gillzenegger garmurinn
gekk á vegg um daginn,
þar með seggjum sauðurinn
syngur steggjabraginn.
Nú er jólið nánast hér
nú skal bólið þrífa,
Nú er jólið nánast hér
nú skal bólið þrífa.
Bóna tólið, bjóða þér
brátt að fólið klífa.
Sauðalæri legg til munns,
leðurnærbrók klæddur.
Sauðalæri legg til munns
leðurnærbrók klæddur.
Í boði mærings bankahruns
borða eg æruhræddur.
Svenni Valur vinur þinn
var að tala um þig.
Svenni Valur vinur þinn
var að tala um þig.
Annann hal ég ekki finn
alltaf malar kötturinn
Baggalútar bergj' af stút
brugg úr kútum vænum
Baggalútar bergj' af stút
brugg úr kútum vænum.
Naumast múta mætti hrút
með þeim grútarsprænum.
Vöðum elg úr egin belg
óðir svelgjum landann.
Vöðum elg úr egin belg
óðir svelgjum landann.
Eins og gelgjur allar helg-
ar við velgjum fjandann.
Ekki fann ég annan mann
eins og Hannes Smára.
Ekki fann ég annan mann
eins og Hannes Smára.
Græðgin rann á glanna þann;
gabbvef spann með Kára.
Enn hann roða´ í austri sér;
orðið boðar keikur
Enn hann roða´ í austri sér;
orðið boðar keikur
upp þó froðu alltaf ber;
er af þeim hroða veikur.
Hringinn eina hef ég séð
heldur leynt þó fari.
Hringinn eina hef ég séð
heldur leynt þó fari.
Eins og kleina kóki með
kyngist seint, með hraði.
Þykir vandi vera stór
vænan landa að brugga.
Þykir vandi vera stór
vænan landa að brugga.
Ef þú blandar of með klór
eins og hland mun grugga.
Eftir matinn oft mig legg
enda gat á étið.
Eftir matinn oft mig legg
enda gat á étið.
Allt í plati, á þinn vegg
er nú bata getið.
Ekki skil hvað aðrir skrá,
allt þó vilji lesa