Þessi þráður er hugsanlega ennþá í vinnslu, en eins og er datt mér í hug að hér væru kannski leyni-hljóðfæraleikarar sem vildu komast út úr þeirri látúnsskel utan almennrar vitneskju.
Ég hef t.d. spilað bæði á túbu og kornett (eins konar trompet, bara minni), hef áhuga á að læra á kontrabassa eða bassagítar og stunda söngnám.
Ljómar upp
Ég líka! Þvílík tilviljun. Þú ættir kannski að fara að taka á þessari stjórnsemi við tækifæri.
Ég líka! Þvílík tilviljun. Þú ættir kannski að fara að taka á þessari stjórnsemi við tækifæri.
Hlýðir þú konunni hans Offara?
Hvurslagt voðalegt skass er það eiginlega?
Heyrðu annars. Er þessi leikur ekki keimlíkur þessum hér?
Starir þegjandi út í loftið
Vertiggjað ibbaðig.
Ég líka! Þvílík tilviljun. Þú ættir kannski að fara að taka á þessari stjórnsemi við tækifæri.
Hlýðir þú konunni hans Offara?
Hvurslagt voðalegt skass er það eiginlega?
Konan var ekki hrifin af þessu innleggi þínu!
Ekkert persónulegt til hennar.
Meira svona skot á þig Offari minn.
Jú Þarfi, þetta er víst alveg eins þráður. Hmm. Það er kannski hægt að sníða hann e-ð frekar að tónlistinni sjálfri?
Ibbar meiri gogg
Yddar gogginn á Þarfa
Ekkert persónulegt til hennar.
Meira svona skot á þig Offari minn.
Af þessu var hún hrifin.Ljómar upp
Jú Þarfi, þetta er víst alveg eins þráður. Hmm. Það er kannski hægt að sníða hann e-ð frekar að tónlistinni sjálfri?
Hvað hafið þér þá í huga, fröken? Kannski ítarlegri greiningar á tónverkum?
Hvað hafið þér þá í huga, fröken? Kannski ítarlegri greiningar á tónverkum?
Mér bara dettur ekkert spennandi í hug. Æjæj, þetta er hálf skömmustulegt.
Hvað um tónelska Baggalýtinga sem kannski geta miðlað eigin reynslu af tónlist? Ég spila t.d. á túbu, og á nokkrar skemmtilegar sögur af því að segja.
Það vantar engan dulítið ryðgaðan túbuleikara í band?
Ég æfði eitt sinn á hljómborð fyrir mörgum árum. Ég er hins vegar það lítt músíkalskur að ég náði aldrei langt í því. Ég get hins vegar sungið skítsæmilega.
Það vantar engan dulítið ryðgaðan túbuleikara í band?
Hér ætti að vera hægt að finna hljómsveit. Sjálfur trommaði ég en er eins kolryðgaður á það og ég get frekast verið. Næ hinsvegar ennþá að slá taktinn og það er það sem skiptir öllu máli.
Ég æfði á orgel og hljómborð í yfir 10 ár... ætti líka að geta sungið örlítið.
Ég er líka frekar músíkölsk og get spilað lag ef ég heyri það.
Ljómar upp og dansar við Rýtu og Þarfa
Issss....ég get spilað lag þótt ég heyri það ekki.