Boy George
Bíðum nú aðeins hægir, kæru Gestapóar. Var ekki talað um það hérna eitt sinn að fólk ætti aðeins að spyrja einnar spurningar í einu?
Ímyndum okkur að ég hugsaði mér t.d. Jóhannes Pál páfa og einhver spyrði: Látinn erlendur karlmaður, þá væri svarið ´"já". Væri hinsvegar spurt: Lifandi erlendur karlmaður, yrði svarið að vera nei... þó tvö atriði af þremur séu rétt.
Ætli menn að fá margliða svör mætti hugsa sér að fyrsta innlegg hljóðaði svo: látinn, erlendur, kvenmaður, stjórnmálamaður, listamaður, fræðimaður, frá 17.öld, frá 19.öld, barnlaus, Þingeyingur, Vestfirðingur, Skoti, skáldsagnapersóna, fyirgreiðslupólitíkus, fæddur að vetri til?
Þá væri svarið svohljóðandi: Já, nei, nei, já, nei, já, nei, já, já, nei, já, nei, nei, já, nei.
Næsta gizk: Jón Sigurðsson
Svar: Já
Næsta gizk frá mér: Er þetta nokkuð Batman?
Ekki veit ég til þess að Leðurblökumaðurinn hafi sungið á sviði, svo nei þetta er ekki hann.
Rétt svar er hinsvegar komið og þetta var söngvarinn og Íslandsvinurinn í hlébarðabuxunum, Simon le Bon.
Ég er sammála Sunda, ein spurning í einu, allir sem eru sammála rétti upp hönd.
Réttir upp hönd.
Réttir líka upp hönd
Réttir upp hönd
Horfir á hina og réttir ekki upp hönd af þrjósku einni saman
finnur hófana en týnir þeim aftur vegna táfýlu
Bara svo að því sé haldið til haga þá á Glottólfur réttinn, það gæti hafa farið framhjá einhverjum.
Réttir upp hönd Við bíðum spennt. En til áréttingar var farið yfir þessi atriði fyrir sumarfrí... auk þess held ég að ég hafi fært næg rök fyrir þessu vinnulagi.
Ég hef reyndar ávallt lagt inn eina tillögu í einu, nema í fyrsta skipti til að spara aðeins tíma...
Afsakið biðina, en jú það er manneskja sem bíður eftir að verða uppgötvuð.