Jæja vinir mínir, þá er ég búinn að sökkva hinu sístækkandi skipi sem hét ´Geir H. Haarde um Grenjað á Gresjunni´. Þar sem ekki var hægt að fjarlægja skipið úr flæðiskerinu var ákveðið að sökkva því.
slær úlfamanninn leiftursnöggt og rotar hann með einu höggi
Sorrý vinur, þessu verður bara að linna.
Er fólk farið að beita ofbeldi hér? Forðar sér frá uglunni
Menn nenna ekki að lesa langintesana hans Úlfa... þess vegna eru menn farnir að slá frá sér.
Menn nenna ekki að lesa langintesana hans Úlfa... þess vegna eru menn farnir að slá frá sér.
Akkúrat. Það er samt svo fyndið að hann hleður inn svívirðingum við félagsrit þeirra sem nenna ekki að lesa innleggin hans og láta hann vita af því. Bráðskemmtilegt alveg hreint.
Ugla er nýja hetjan mín! Horfir aðdáunaraugum á aðfarirnar
Ég ætti kannski að lemja hann líka. Ég sagði honum bara að þegja hérna um daginn.
Knúsar Uglu.
Takk.Ljómar upp
xTxT
Það fá allir fríann fjórrétta dinner á eiturbrashúsinu mínu í kvöld.
Hann hefur greinilega ekkert farið eftir því.
Nei, þess í stað talaði hann bara meira um það hvernig ég ætti að troða sverði upp í rassgatið á mér (eða eitthvað álíka bull) og sendi svo inn hvern orðabelginn á fætur öðrum við félagsrit hjá mér þar sem hann fór með meiri svívirðingar. Verst fyrir hann sjálfan að það er svo augljóst að hann hefur ekki hundsvit á því hvað hann er að segja. Gríðarfyndið alveg.
Hann er álíka fyndinn og flugslys.
Ég hef engu við þetta að bæta!
Slöppum nú bara af í dag, biðst velvirðingar enn og aftur á öllum svívirðingum.
Þú er ágætur bara örlítið ofvirkur, það hefur hingað til ekki skaðað mig.
Það virðist lýtið þýða fyrir mig orðið að skrifa meira hér í bili. Allt sem ég segi er annað hvort misskilið eða tekið sem hótanir eða svívirðingar alveg sama hvað það er. Svo var ég að fá póst í dag frá Dúdda um að Baggalúturinn hafi upphaflega verið gamaldags fasistavefsíða, svo það er ekki nema furða.
Ekki þarf blóðugt að hafa áhyggjur af því að ég verði með frekari dónaskap við hana næstu misseri. Ég fer oft yfir alla pósta sem ég sem, og öll svör til mín. En hvernig er mér spurn er hægt að vera álíka fyndinn og flugslys þegar ekkert flugslys er fyndið?
Þar svaraðirðu eigin spurningu...
Hann er álíka fyndinn og flugslys.
Ég hef engu við þetta að bæta!
Ég veit strákar, ég veit. Ég ákvað að taka kaldhæðnina á þetta.