Sára drauminn grimman gaum,
gleyma aumu hjörtun
ára flauminn stríðan straum
stendur laumust kvörtun.
Held ég hafi náð að gera sléttubönd í leiðinni:
Kvörtun laumust stendur straum,
stríðan flauminn ára.
Hjörtun aumu gleyma gaum,
grimman drauminn sára.
Glæsilegt hjá þér þú ert nú bara að verða næstum eins góður og ég.Glottir eins og fífl
Kvarta mátt á karla háttu,
komdu sáttur aftur.
Segðu fátt og fara máttu,
fylli- nátthrafn -raftur.
Raftur mjói rak um sjó,
ránin dró að sandi,
undir hrói fann ég fló,
frekar sljó á landi.
Landa ekki aftur drekkur
eftir blekkinguna.
Beið af hnekki rammur rekkur.
Rauf hans þekkinguna.
Þekking metur fræðaflet,
fínt er ketið andans,
burt með leti ljótt er net,
og lævíst hretið fjandans.
Fjandans tólið fær ei hólið
framar stólað get ei á´
uppí bóli brást mér fólið
brussan hjólgröð kvaddi þá.
Þá ég æli stend með stæl,
stíg í hæl og beygi,
út fer spælegg, eplaskræl,
ekkert væl - bak teygi.
Man einhver eftir umræðunni um hvort oddhendur þyrftu að vera hringhentar líka? Ég hef eftir sem áður gengið úr skugga um að þær eiga að vera hringhentar. Ég spurði einhvern úr stjórn Iðunnar, ég man ekki alveg hvað hann heitir í augnablikinu, en hann tjáði svo að drægi maður línu milli rímorðanna kæmi út oddur, en það var samt ekki uppruni nafnsins held ég, heldur bara gott að hafa til minnis.
Þá ég æli stend með stæl,
stíg í hæl og beygi,
Ég kvika ekki frá því að bæði útgáfurnar séu Oddhendur, önnur aldýr og hin hálfdýr... og að búið sé að breyta nafninu yfir í Oddhendu og Frumstiklað... ef við notum nýju skilgreininguna, þá þarf hringhent innrím... ef við notum eldri skilgreininguna, þá virka bæði... sjá hér einhvers staðar
Það er satt hjá þér
Teyga má nú bjórglös blá,
af blútnum fá þér meira.
Eftir þrjá má ekki frá,
okkur fláráð keyra.
Keyri trukkinn - bóndabukk,
brýst um jukk og aurinn.
torgaklukku keyrð'á, fukk
kreisti sukkið - gaurinn.
Gaurinn bælir stundum stæla,
stendur smælið eitt.
Konan tælir, há með hæla,
hún skal næla í feitt.
Feita ketið mest ég met,
mega éta og narta í.
Frá klósettsetu fer ei fet,
fljótt ef get ég skitið því.
Þvílíkt dót og draumarót.
Dregur spjót um hárið.
Síðar snótin löng og ljót
leggur bót á sárið.
Þurrkar svitann af enninu Fjúh, þetta tók langan tíma.
Ljómandi Ljómar upp
Sárin gróa, Bjöggi Bó,
blessað hróið litla,
rödd ó-mjóa, mikið hló,
magaþró vill kitla
kitlar stundum stráka mund
stúlku lund það bætir
góðan fund þau fá á grund
freðna und hún vætir
og þar með er ég orðinn heiðursgestur á ný.
Vætum kverkar, kitlum serk,
kneifum merkar veigar,
drykkinn sterka, staupa verk,
með stórum klerki teigar.