Lærði ég og las ég um af þorsta
reisulegan rómaðan
rúnarstein við Horsta.
Horst lék Tappert, Derrick dyggðaprúða.
Áður gætti ýtur sá
útrýmingabúða.
Búðanna við Blönduósa saknar
enginn maður uppi nú.
Illa sagan raknar.
Pissustopp:
Fyrstu línu hlebbA hér að ofan
veldur ekki vikhendan...
... vont er hann að lofa.
Æ, já, þessi asnalega regla. Núnú: Horst lék Derrick, dyggðum- Tappert -prúða
(öllu má redda með slitru)
Raknar þar úr roti -gastiR hlewa-.
Þeir segja leika á heimsku hans
harla lítinn efa.
Efalaust má aðra vísu semja.
Ýmiskonar afbrot má
einnig reyna að fremja.
Fremja skaltu fólskuverk í laumi,
eða sértu ofsa klár
aðeins bara í draumi.
Draumar eru dusilmenna siður.
Margur sem að ætlar upp
endar í falli niður.
Niður skal ég nár í krukku þeysast.
Reikurinn af réttinum
mun reyndar upp þó leysast.
Leysast mun úr þraut og lífsins vanda:
Ég lofa því: Að lokum mun
líkið hætta að anda.
Andar líkið? Líkast til er magi
enn að rotna. Útblástur
af andfúlara tagi.
Tagið sem í texta er best að vista
er skelfing létt að skilgreina
og skorða innan gista.
Gistináttagjaldið mætti hækka.
Túristana tel ég böl
og tímabært að fækka.
Fækkar þeim sem Framsókn vilja kjósa.
Afturhaldsins eykst nú makt,
því ekki ber að hrósa.
Hrósa vil ég hundasúruáti
sem ég iðka alla tíð
einn á mínum báti.
Bátinn læt ég berast hratt að ósi
feigðarinnar, fer það best
að framtíð þessa kjósi.
Að kjósa bátnum kalda skor ég geri.
Vil að lífisins harði hnefi
heljarmikið kjatshögg gefi.
Kjósa má um margt, en ekki þetta.
Vikhenduna virða skal,
Vel ég hana netta.
Netta vil ég núna snót við dansa.
Fari hún á flugið hratt
fell ég - eða stansa.