ælir hérna orðum, væri
Upprifinn - já kjáninn.
er kemst hann nálægt kvenmannslæri,
þá kveinar litli bjáninn.
Gimmi þetta var nú bara ógeðslegur endir á annars ágætri stöku.
Og mikið óskaplega er gaman að sjá Kveldúlf aftur.
vondur Gimlé virðist mér
verstur þó við konur
öruggt tel að aulinn hér
sé algjör tíkarsonur.
Undarlegt með Upprifinn
aldrei fer í bað.
Af illsku áfram drifinn
og ekkert meir um það.
Rússar eru eldfimir.
Unun er að sjá þá brenna.
Sviðnir ilma útlimir,
aula eins og Vladimir.
Rækjutyppi ríðandi,
rammri skækju bíðandi
á hækju eftir aurum,
úr flækjubuddu, frá maurum.
Muna ber að sannleikurinn felst í ríminu en ekki merkingunni.
aumara ég ekkert leit
en orðahrúgu þessa
Mubli henni skrítin skeit
til skammar er sú klessa.
Ég ætla að rjúfa hefðina og skammast í þeim sem var þarnæst á undan mér...
Ritar þú hér rænulaus,
ræpan þín er illa stöfuð.
Mubli litli mygluhaus,
mosavaxna flugnahöfuð.
Þarna ræðst óþokkinn á blessað barnið
Veldur Skíta- Skrumarinn
skelfingu hjá börnum.
þegar úldinn þrumarinn
Þýtur úr hans görnum.
Gimlé með sinn grautar haus
gapir eins og ýsa
Hve viti er hann voða laus
vandi er að lýsa!
Nermal, alltaf þekkist þó,
- þykist öðrum skárri.
Innrætið sem ýlduþró,
- andskotanum flárri.
Aðalgat á Golíat
er gleikkað neðra opið
aleinn sat með ónýtt fat
annars migu hafði sopið
Upprifinn virðist gamalt grey
grönum hanns má það víst sjá
ungri vill hann mall'á mey
mögnuð verður stundin þá
Lifnaði nú Lappahró
er ljótar vísur færir
í því virðist finna fró
er flesta menn hér ærir
Upprifinn er algjört naut,
- andlaus, gulur, geldur.
Uppeldi hann ekkert hlaut,
og enga menntun heldur.
Ömurleg voru þau umskipti,
allir sakna Hlebba,
engir vilja viðskipti,
við hann eiga Gibba.
ekki vísu getur gert
Golíat af viti
hrynjar illa einskis vert
engu stafar gliti.
Fúlan leggur fnykinn af
fantagengi þessu.
Leyfi drottinn loks mér gaf
að lemja þá í klessu.
Lýgur þessi laupur hér
lævís brögðin notar
gróflega að gestum fer
og guði sjálfum otar
(Lýgur þessi laupur hér...)