Brýnið Lappi bítur vart
bólgið tannlaust hræ.
Melurinn er mestanpart
móða hálfgegnsæ.
Hlebba menn vilja helst lífláta lóga
láta hann grotna í áburði skóga.
Lifir samt lorturinn enn
látið samt tilkynnt hér senn
því óvini lorturinn á allveg nóga.
Offari er böl vort og bömmer
bílahræjagarður hans slömm er
það væri til bóta
ef viðrinið ljóta
lenti undir hræi af Hömmer.
Hlebbi er hinsegin maður
hérna með bull sitt og þvaður
Þrjóskur og þver
þónokkuð sver
ruglaður grimmur og graður,
Sínu klínir kloffari
kúkalabbabulla,
á almannafæri er Offari,
ógeðið að drulla.
Heldur að þræl til kynlífs kind
er'ann kýs til fylgilags.
Hlebbi er item erfðasynd
sem uppræta þarf strax.
Þetta er freðmýrar froskur
fúllyndur ljótur og skoskur
En þrátt fyrir það
er þónokkuð að
Áður var nirfillinn norskur
Frá æsku hlaut af bölvun býsn
og breyska lund.
Til svölunar á sinni fýsn
serðir Offi hund.
Froskurinn er grænn og grár
grautfúll hér að freta.
en kosturinn við froskafár
frakkar kjötið éta
Vífin öll í Valalaskálf
varast Offarann.
Með átjánhundurð aukasjálf
á Ashley Mad er hann.
Til eru í heiminum tvenns konar menn
(og trúlegt ég sé þeirra bestur):
Góðir og vondir, sem versna jú enn,
því varmenni er Hleifargestur.
„Helvítis andskotinn haf'ann,“
hávær er almennings krafan:
„sjóð'ann í saurskitu og graf'ann
sammakko pohjoisnavan.“
[Það er svo rólegt hérna að ég verð bara að níða sjálfan mig]
HlewagastiR, hann er versti dóni
hórdómsmaður, ógeðfelldur kóni,
fyllibyggta, forpokaður róni,
flár og grimmur, veldur sorg og tjóni,
Senn mun kauða í Sultartangalóni
sökkt til botns – hvar djöfull fagnar þjóni.
Ég er fífl og fáviti,
flatlús, ormaskítur.
Ég er flasa á fuglsdriti,
frunsa og engum nýtur.
Hei, þú áttir að níða mig, Billi. Alltaf þann sem er á undan.
Lestu bara upphafsinnleggið. Gefur frá sér vellíðunarstunu
Skáldfíflahlutnum var skammtað til þín
er skeit honum Óðinn á flótta.
Og nú ertu hlebbI eitt heljarstórt grín
og höfundur einkirningssótta.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Billi þú ættir að búa í trjánum
og banana troða í kinn
ef Upprifinn, af öllum bjánum
er andlegur leiðtogi þinn.
Lekur úr nefinu lúsnitarskegg
sem leiðir hann svo undir vöttinn.
Og hlebbA má líkja við straumandarstegg
sem stendur og malar við köttinn.