Lenny Bruce Willis?
Nei.
Dálítið langt er síðan leikarinn hefur verið í sviðsljósinu. Þó dúkkaði hann upp nýverið í tengslum við þær fyrirætlanir hans að stofna hnefaleikaklúbb.
Er samsetningurinn e.t.v. Andrew Dice Clay Aiken ?
Ég hugsa að spyrjandi sé að meina (fiktar aðeins í tilvitnuninni, með leyfi yfirvalda) :
Spurt er um kjaftforan spaugara og leikara
sem jafnframt er söngvari sem gerði það gott í raunveruleikaþætti.
Z. Natan hefur rétt fyrir sér, og ég þakka honum áréttinguna á merkingu spurningarinnar.
Víkur þá sögu að tveim tónlistarmönnum, sem báðir geta talist hafa unnið frumkvöðlastarf á vissan hátt, en á gerólíkum sviðum þó.
Fyrra nafnið ber núlifandi söngvari, f. 1961. Hinn músíkantinn andaðist í Hollywood árið 1937.
Hint?
Samkvæmt rannsóknum mínum þá fæ ég ekki betur séð en að þetta sé alveg hárrétt hjá aukahænunni. En við skulum fá það staðfest hjá höfundi.
Svar Jóakims stenst fullkomlega - vel að verki staðið.
Ég sem hélt að þetta yrði svo erfitt...
Andsk. þarf ég þá að finna nýtt?
Jæja, eina erfiða fyrir helgina og tökum við höfunda fyrir: Spurt er um höfund vinsælla sjónvarpsþátta annars vegar og rithöfund hins vegar.
Jæja, vísbendingar:
Þættirnir vinsælu voru á dagskrá á níunda og tíunda áratug síðustu aldar, í ellefu ár samtals.
Rithöfundurinn var Breti.
Eftir smá rannsóknavinnu tel ég ekki óvitlaust að skjóta á Glen Charles Dickens.
Þetta er svo nálægt að ég verð að gefa rétt fyrir. Ég var reyndar með Les Charles í huga, en það er sama. Ljómar upp
Ég íhugaði að giska á báða, en mér fannst svalara að henda fram einu giski eingöngu.
Víkur nú sögunni að ljóshærðri söngkonu sem tókst að verða forseti Bandaríkjanna. Hver getur það verið?
Olivia Newton John F. Kennedy?
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Mjög góð ágiskun ... en er Ólivía ljóshærð? Hvað sem því líður er þetta ekki svarið sem ég sá fyrir mér. Söngkonan mín er á mjög svipuðum aldri og þín, en forsetinn minn er eldri en þinn.