Nei
Er það ekki bévítans dónaskapur hjá fólki sem maður kannast við, en man ekki hver er að heilsa manni út á götu?
Jú.
Það er gott að vera ómannglöggur
Nei, bara skýin.
Er allt í lagi heima hjá þér?
Nei eiginlega ekki, hér eru allir kirtlalausir og heilsulausir, drasl útum allt og frostpinnaspýtur á öllum borðum.
Kanntu að búa til góðan hýðishrísgrjónagraut
Já já, Grjón í pott, hella mjólk yfir, hita, salt eftir smekk, held ég.
Kanntu lombert?
Nei.
Kanntu bridds?
Nei.
Hefur þú unnið á skyndibitastað?
Nei, sumarhótel eru til að hvíla sig á.
Hefur þú skandalíserað í veislu?
Kannski..Já... svona smá.
Ertu með stór eyru?
Nahhh, bara passleg fyrir mitt vaxtarlag.
Ætti ég að smella mynd í tækið?
Já.
Á ég að fá mér snakk?
Já. Láttu það eftir þér.
Á að reka bakarísstúlku (innlenda) sem þekkir ekki muninn á heilhveitibrauði og fransbrauði?
Nei, kenna henni. Ef hún neitar svo að skilja, þá má kjöldraga hana og hengja
Á ég að borða eitthvað gott í kvöld?