Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer höfum ákveðið að stofna leik þennan þó eigi sje hjer mikið af innleggjum þar eð marga orðsnilldina má finna í umræðum um fjelagsrit auk þess sem finna má brot úr gömlum þráðum á Google. Vonandi verður svo fortíðin aðgengileg síðar meir.
Hver sagði eftirfarandi ?:
Það tilkynnist hér með að fjármál frú *** hafa verið tekin úr hennar höndum og þar með allt það plast sem hún notar til að greiða fyrir vörur og þjónustu. Vinsamlegast ekki koma nálægt henni, hún er eilítið uppstök vegna þessa tiltækis fyrirvinnunnar og þeim sem vitið og buxurnar hefur á heimilinu.
Hakuchi?
Eigi hann. Bagglýtingur sá er um ræðir hefur eigi látið sjá sig eftir að aftur var opnað hjer.
Keisari vor, Mikill Hákon?
Hvorugur. Gesturinn er orðinn fremur fásjeður.
Muss S. Sein?
Nei. Hann orti eitt sinn e.k. níðkvæði um annan Bagglýting en hefur að öðru leyti eigi verið þekktur fyrir kveðskap. Hann heitir rammíslensku en jafnframt sjaldgæfu nafni.
Lómagnúpur?
Nei. Hann var verulega virkur á upphafsárum Gestapósins. Skegg hans er (eða a.m.k. var) vel þekkt.
Órækja
Það tilkynnist hjer með opinberlega að Órækja er rjett svar. Ofangreind orð má finna neðarlega í athugasemdum við eftirfarandi fjelagsrit: http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=1181&n=1351
Þarfagreinir á spurnarrjettinn.
Þá vandast málin. Látum á þetta reyna.
Í öllu kosningaæðinu í fyrradag, fór ég á supernova.msn.com og kaus alla aðra en Magna nokkrum sinnum, enda ókeypis.
Ekki var það hann, né heldur eitt af hans aukasjálfum (að mér vitandi).
Viðkomandi Gestapói hefur verið hændur að Gestapó nokkuð lengi.