Þetta er alltof flókið... er ekki nóg að tengja tölvuna við rafmagn og kveikja á prentaranum?
Þetta er bara að svínvirka hjá mér.
Brosir svo breitt að eyrun krumpast saman á hnakkanum.
Ég ítreka að ef sviðslýsingarnar birtast ekki, þá er eina leiðin sem ég veit um sem virkar til að laga það sú að taka viðbótina út og setja hana inn upp á nýtt. Ég mæli með því að það sé prófað þar til draslið virkar.
Að leysa innskráningarvandann er nokkuð sem ég veit ekki alveg hvort væri hægt að gera vaframeginn, en ég get rannsakað það mál. Það væri mjög gaman ef ég gæti sett inn eitthvað í þá veru í síðari útgáfu. Ég lofa þó engu.
Fyrir þá sem nenna ekki að fletta þá endurbirti ég hlekkinn á nýjustu útgáfuna hérna.
Jæja já.
Nú er minn bara kominn með eigið lén.
Það er því mér mikill heiður að tilkynna að núna er hægt að fá viðbótina hérna.
Til hamingju með vefinn.
Jæja já.
Nú er minn bara kominn með eigið lén.
Það er því mér mikill heiður að tilkynna að núna er hægt að fá viðbótina hérna.
Og kannski með server og allt?
Nei, serverinn er úti. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Hvar er servantinn á svona stundum?
Það tilkynnist hjer með opinberlega að svo virðist sem þetta virki Ljómar upp.
Sýpur á fagurbláum drykk (á fljótlegri hátt en áður)
Þó finnst oss form þeirra textaskráa er til verða við vistun þráða undarlegt. Íslenskir stafir eru geymdir í tveimur bætum, þ.e. 0xC3 og síðan annað bæti er vjer erum of latir til að kanna hvað þýðir. Þess ber að geta að vjer erum að prófa þetta í Gluggum. Þetta birtist samt 'rjett' í Notepad en mjög undarlega í sumum öðrum 'editorum'.
Það er rétt að íslenskir stafir eru vistaðir á þennan hátt - raunar eru allir stafir vistaðir þannig, þar sem form textans er UTF-8. Þetta er nauðsynlegt til að viðhalda skrýtnum táknum á borð við ♪ og sitthvað fleira sem er ekki endilega augljóst að eru sérstök tákn.
Forrit á borð EditPlus ráða vel við UTF-8.
Viðbót þessi er hið mesta þarfaþing og getum vjer því hjer með tilkynnt opinberlega að hjer eftir notum vjer nær eingöngu Firefox á Gestapó en fram til þessa höfum vjer ýmist notað hann eða IE.
Hjer er síðan hugmynd að viðbót: Að unnt verði að vista skilaboð (eitt eða mörg í einu) úr póststöðinni. Flóknari en svo sem óþörf viðbót væri að geta framsent þau líka (eitt eða mörg í einu) á tölvupóstfang.
Þetta er einmitt virkni sem ég hafði sjálfur íhugað að bæta við. Ekki ætti að vera svo erfitt að útfæra hana, núna þegar ég kann að vista efni af síðum á annað borð.
Einfalt verður síðan að gefa ykkur hinum nýja útgáfu; ég þarf einungis að skrifa yfir skrána á mínu eigin vefsvæði.
Ljómar upp og dansar dans þeirra er eiga sér sitt eigið veflén.
Dansar með
Ég á mörg lén.
Þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir fæ ég þessa viðbót ekki til að virka.
Brestur í óstöðvandi grát
Ansans rugl. Ég veit ekki hvað er hægt að gera.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Þrjóskast enn frekar við og reynir oftar