Hvernig er það, ertu farinn að athuga hvernig þetta gengur hafi maður sett upp Eldref annan?
Nei ... það er líklega næsta mál á dagskrá. Ég hef þó trú á því að þetta virki jafnvel fyrir hann. Ég þyrfti þá hins vegar að gefa út nýja útgáfu til þess - núverandi útgáfur vilja bara láta setja sig upp fyrir 1.5.
Jæja, ég prófaði að búa til nýja útgáfu sem vill láta setja sig upp fyrir tvistinn, og hún virkar skítsæmilega í tvistinum. Tvistafólki er því vinsamlegast bent á að ná í nýja útgáfu hérna, nú eða þá bara að uppfæra í gegnum Eldrefinn sjálfan.
Er nú hægt að tvista á netinu líka, allt er nú til!Gefur frá sér vellíðunarstunu
Öskrar Það er alveg sama hvað ég geri... ég fæ þetta ekki til að virka!
Og tvisturinn er að fara í taugarnar á mér
Ný útgáfa; 1.2.2.1
Þessi útgáfa lagar gamla villu sem hefur skotið upp kollinum aftur - þegar farið er fram og til baka í vafranum innan sama flipa, þá birtast sviðslýsingarnar aftur, og aftur, og aftur ...
Því miður hef ég ekki getað aflúsað vandann sem veldur því að viðbótin virkar ekki hjá sumum - ég hef ennþá enga hugmynd um af hverju þetta gerist.
Ég væri til í að fá mjút takka á hvert tab svo maður geti spilað leiki á netinu og horft á stolnu bíómyndina á sama tíma.
Þetta er hugmynd sko. Ég skal skoða fýsileika þess að útfæra hana.
Ég væri til í að fá mjút takka á hvert tab svo maður geti spilað leiki á netinu og horft á stolnu bíómyndina á sama tíma.
Þetta tek ég undir heilshugar. Ég hef oft reynt að grafa upp aðferðir til að kála helv. hvellljós hljóðum (flash). En setji höfundur ekki þagnarhnapp í leikinn er ekki hægt að láta kvikindið halda kjafti. Ef þú gætir ráðið bót á þessu efast ég ekki um að þú verðir vinsæll mjög á alnetinu.
-
Stuttleg leit á gagnvarpinu skilaði þessu. Hugsanlega hjálpar það eitthvað til. Ég er þó alls ekki hættur að rannsaka málið.
Hefur einhver reynslu af því að fá þessa viðbót til að virka á FF 2?
Nú er ég búinn að installa ferskum FF2 á nýju vinnuvélin mína. Ég fæ vikðbótina ekki til að virka og hún truflar aðrar viðbætur s.s. Gmail manager.
Ég hef að vísu ekki gert ítrekaðar tilraunir til að troð þessu inn, en ég fer að gera það. Starir þegjandi upp í loftið
Ég hef prófað viðbótina í Eldrefi tvö bæði á Linux, Makka og Windows, en hef ekki lent í neinum vandræðum. Líklega er þetta gamla vesenið sem veldur því að viðbótin virkar ekki stundum, sem er einstaklega pirrandi ... en ég kann engin ráð við því.
Hmmmm.... ertu að segja að ég verði að setja gamla viðbót inn fyrst og uppfæra svo nokkrum sinnum Starir stjarfur út í loftið
Ég hef bara ekki hugmynd um hvað virkar ... kannski nægir að taka núverandi eintak út og setja inn aftur ... og aftur ... þar til það virkar.
Inn, út, inn, út þar til það er orðið gott. Minnir mig á... æji nei gleymum því. Gleymir því
Ja svei. Eldrefurinn minn neitar að þýðast við Baggalútsviðbótina. Vælir yfir því að þessi útgáfa fúnkeri aðeins með Eldref 1.5 til 2.0*. Nú tel ég min brúka Eldref 2.0.... hvur fjárinn er að þessu? Eða mér? Eða hverju sem er...
Hmm ... hvert er nákvæmt útgáfunúmer hjá þér? Það má sjá í Help->About