það tilkynnist hjer með opinberlega að hjer má einvörðungu rita í anda forseta vors.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að formgalli er á stofnun þráðarins þar eð um miðbik (eða aðeins framar) málsgreinar Ívars vantar orðið 'opinberlega'. Telst þráðurinn því ógildur.
[segir hver? - Ívar]
Það tilkynnis hjer með opinberlega að vjer eru ekki sammála!
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer sjáum eigi ástæðu til deilna. Samt sem áður verðum vjer einnig að tilkynna að oss grunar að þráðarstofnandi hafi breytt innleggi sínu eftir að hann skrifaði það. Þar sem vjer getum eigi fært sönnur á slík neyðumst vjer hins vegar til að strjúka kviðinn og elska friðinn.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Haha. Hexia vann þessa lotu held ég.
Án nokkurs vafa! sýpur á fagurbláum drykk
Týnist á miðöldum
Minz er mega sáttur við þennan geim! Djöz rokk mar!
~
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hrökklast enn meira afturábak en Hexia og hrasar meira við en venjulega
Það tilkynnist hjer með opinberlega að ofangreint innlegg Limbra hlýtur með formlegum hætti að teljast ógilt þar eð eigi uppfyllir það að áliti voru reglur þær er í þræði þessum gilda Klórar sér í höfðinu.
Reynir að hrökklast meira aftur á bak og hrasa meira við en Vladimir nokkurn tímann, en finnur á sér að til þess þyrfti tímavél (sem er eigi nothæf þessa stundina) til að komast að því hversu mikið Vladimir hefur mest hrökklast aftur á bak og hrasað við. Sýpur þess í stað á fagurbláum drykk
Er þetta keppni í því hver getur hrökklast lengst afturábak? Hrökklast afturábak um fimm ár
Svei oss Offari, ef þér hafið ekki fundið nýja leið til tímaferðalaga! Ljómar upp
Hrökklast fram á við, og enn framarTíminn er eins og vatnið, kæru þegnar
Það tilkynnist hjer með opinberlega að hér hrökklast menn um og virðist sem allmargir hafi neitt hrökkbrauðs og er það til marks um leynileg áform svía að valda upplausn og glundroða í Baggalútíu. Ég skora á vorn fagurgræna forseta að grípa til viðeigandi ráðstafana.Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Það tilkynnist hjer með opinberlega að yðar einlægur hefur hvorki hrökklast eitt nje annað í yfirstandandi lotu. Stekkur hæð sína og blístrar fjörugt gönuglag samræmt og fornt.