Ekki voru það hinir stórkostlegu Trinity bræður og ekki var það Enginn.
Aðalleikarinn er þekktur fyrir leik sinn í þessari tegund kvikmynda.
Kata vandræðagemlingur; "Cat Ballou"?
Þjóðráð Lukku-Láka?
Öngva gamansemi Sundlaugur.
Gælunafn aðalleikarans var aðalstitill.
Rétt er það, enda kallaður Hertoginn.
Myndin er frá velmektarárum leikarans.
Rangt. Þá var nú farið að halla undan fæti fyrir Dúknum.
Veitingastaður í Reykjavík ber nær sama heiti og myndin en veitingarstaðurinn er kenndur við götuna sem staðurinn er á þó götuheitið sjálft megi rekja til kennileitis á því svæði en það kennileiti sést ekki lengur.
Rauðará.
Þú ert þá að tala um Red River. Finnst að Billi eigi að fá réttinn.
Hva, á nú að fara að svara með úttlensku nöfnunum?
Þulur er að tala í hljóðnema og gengur á eftir myndavél sem færist rólega á undan honum.
Myndavélin eykur síðan hraðan smátt og smátt þannig að þulurinn gengur fyrst hraðar, hleypur síðan, og missir að lokum alveg af myndavélinni sem brunar í burtu.