afgreiðir beiðnirnar á methraða
Ein og hálf klukkustund er auðvitað engin bið eftir svona góðu tilboði.
Veltir vöngum & leggst í smásmugulegar málfræðipælingar
Stemmningin hérna minnir mig alltaf á það þegar ég var í hópi annarra kúreka að reka hjörð yfir gresjuna, hann Doddi Dauðakippur eins og við kölluðum hann var látinn kokka fyrir hópinn og ég get svo svarið fyrir það að lyktin af matnum hans var sú sama og lyktin sem mætir manni hérna inni. Dregur djúpt að sér andann
Þetta hefur sumsé verið listakokkur, hann Doddi . . .
Er ekki hægt að fá ábót á glussann?
gefur ábót á glussann
Jæja, þá er komin vefsíða fyrir staðinn!
http://www.ettannsjalfur.tk/
Skoðar matseðilinn
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
sækir sjúkrabíl fyrir Útvarpsstjóra
Best að birta seðilinn hér líka
Forréttir
gufu-mauksoðið frostgrænmeti 500
roadkill with rocks, borið fram með skemmdu skyri og loðnum kartöflum 399
túnfiskur úr dós í dósinni með kokteilberi 600 með lokinu 700
djúpsteiktar brauðsneiðar með grænum baunum og rúgmjöli stráð yfir 680
ristað brauð með Vick's áburði og hakkkleinu 941,50
AÐALRÉTTIR
saxbauti úr dós með mysupiparsósu og hálfsoðnum kartöflum 1050
kaffilegið lambalæir með canderel og rjómadufti, borið fram með grænum baunum og lýsi 1530
svínahnakki mauksoðinn í Egils Orku, borinn fram með rauðkáli, kartöflum og saltpillum 1650
snúðahamborgarar
- brúnn 1020
- bleikur 980
Lambakótilettur soðnar upp úr undanrennu og harðfiski, borið fram með stöppu af kartöflum, kapers, smurolíu og tvisti. 1820 (auka smurolía 300) (hægt er að skipta smurolíu út fyrir diesel fyrir 500) (skipta má tvisti út fyrir hvarfakút fyrir 18493)
Djúpsteiktir selshreifar í Orly, bornir fram með loðnu, vaselíni og stikkilsberjum 1040
rottuborgari með útrunnum frönskum og smjörsteiktum álpappír 1050
Sperðlar með rósakáli, súkkulaðisósu og hnoðmör 2420
hjólbörudekk marinerað í kópavogslæknum, borið fram með bernaise-furunálasósu 6426
Sigríður frá Stöpum, borin fram með frönskum hreim 3025
Siginn fiskur með kokteilsósu, frönskum kartöflum og relish 1795
marsípansúpa með hvítlauk og negulnöglum bragðbætt með þvottasvampi 1569
13.42" pizza með lakkrís og beiskum brjóssigg, borið fram með hlandvolgu neskvikki með akrasméllíki oní 1856
(hægt er að skipta út beiska brjóssigginum fyrir perubrjóssigg fyrir 352)
rolluborgari með blönduðu vegaryki, borið fram með fírtommu galvaníseruðum nöglum og nuddolíu 5618
(hægt er að panta sér vegaryk fyrir aðeins 4021 krónu til viðbótar. Í boði eru vegaryk
frá Skeiðarársandi, Mýrdalssandi, Hornafirði, Egilsstöðum, Kárahnjúkum, Þórshöfn og Blönduósi)
(Bætið við svifryki fyrir aðeins 40145)
Kóbaltsmarineruð ýsulæri með hraunbitum og kókos-bernaise sósu 1990
Allir aðalréttir eru bornir fram með frönskum kartnöglum og hlaupböngsum
EFTIRRÉTTIR
smjörlíkisbiti með súkkulaðisósu 790
poppkorns-hamsatólgarkaka, borin fram köld 850
svínaterta (svamptertubotnar með svínakjötsneiðum á milli og súkkulaðihjúpur utan um, smartís stráð yfir) 590 sneiðin.
prinspóló með síld 300
Hálfmánar með sardínum í tómatsósu 250 pr. stk
Heykögglar í hvítlaukssósu, borið fram flamberað upp úr íslensku brennivíni 550
súrsuð rjómabolla með byssupúðri á milli 413
(hægt að skipta byssupúðri fyrir andlitspúður fyrir 300) (bætið Citröen glussa við fyrir aðeins 5033 krónur)
Eplakaka með remúlaði og piparsósu 760
gólar af hlátri
Líst í meiralagi vel á seðilinn
Hlær meiren góðuhófigegnir á þessum tíma sólarhrings
Pantar marsípansúpuna m/öllu tilheyrandi & heykögglana m/hvítlaukssósu í eftirrétt
Kóbaltsmarineruð ýsulæri með hraunbitum og kókos-bernaise sósu 1990
Namm hljómar girnilegaslefar Fæ þetta líka.
sækir sjúkrabíl fyrir Útvarpsstjóra
Best að birta seðilinn hér líka
......
(Bætið við svifryki fyrir aðeins 40145)
.......
Er svifrykið ekki heldur dýrt orðið?
EFTIRRÉTTIR
smjörlíkisbiti með súkkulaðisósu 790
poppkorns-hamsatólgarkaka, borin fram köld 850
svínaterta (svamptertubotnar með svínakjötsneiðum á milli og súkkulaðihjúpur utan um, smartís stráð yfir) 590 sneiðin.
prinspóló með síld 300
Hálfmánar með sardínum í tómatsósu 250 pr. stk
Heykögglar í hvítlaukssósu, borið fram flamberað upp úr íslensku brennivíni 550
súrsuð rjómabolla með byssupúðri á milli 413
(hægt að skipta byssupúðri fyrir andlitspúður fyrir 300) (bætið Citröen glussa við fyrir aðeins 5033 krónur)
Eplakaka með remúlaði og piparsósu 760
Ívar minn, ég óttast að þessum eftirréttum fylgi tveir eftirréttir. Þ.e.a.s. Undirréttur og Hæstiréttur!
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Er ´1990´ verð ellegar ártal ?
Nú ég ætla´rétt að vona að þetta sé ártalið, ´91 módelið er svo ógeðslegt eitthvað.
gefur ábót á glussann
Jæja, þá er komin vefsíða fyrir staðinn!
http://www.ettannsjalfur.tk/
Vjer förum hjer með formlega fram á að þjer birtið svona innlegg einungis á þannig tímum að öruggt sje að vjer lesum þau annarsstaðar en í vinnunni Heldur niðri í sjer hlátrinum, strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Mmmm djúpsteiktir selshreifar í Orly á aðeins 1040. Ég ætla að fá einn skammt, takk kærlega fyrir.
Stekkur hæð sína
afgreiðir
GESSOVEL!
Takkkærlegafyrir. Ljómar upp og gæðir sér á hinum mjög svo girnilegu selshreifum.
MATUR!