Síðan ég setti spurningu mína fram hefur hún reynst of flókin, og því er mér spurn hvort að sá sem hafi samið innleggið hafi raunverulega skilið hvað hann var að fara, enda gersamlega skilningslaus setning. Þó skil ég þetta með ´éttann sjálfur´, en hvern er verið að éta?
Og hvað merkir svo öll setningin? Það þætti mér gaman að fá að vita, börnin góð.
Ætlarðu að fá saltpillurnar eða ekki?
Fá hjá þér sperðla með jafningi og grænum baunum.
færir Hvæsa selshreifa í Orly
Því miður fást sperðlarnir bara framreiddir með rósakáli, súkkulaðisósu og hnoðmör,
Matseðillinn hefur verið uppfærður
Nei, ekki með hömsum... en Siginn fiskur með kokteilsósu, frönskum kartöflum og relish
færir Grámanni signa fiskinn með meðlætinu
Tek hraustlega til matar ÉG hef ekki fengið svona góðan mat lengi. Hvað skulda ég svo mikið? Er hægt að setja á reikning hjá þér?
1795 kostar þessi réttur. Jú, þú getur stofnað reikning
Vildir þú þá vera svo vænn að setja það á reikningin. Þú veist hvernig þetta er svona um mánaðarmótin.
Það er sami díll hér og á eiturbrashúsinu mínu, sé ekki borgað fyrir hádegi fyrsta hvers mánaðar, kemur Dúddi í heimsókn með haglarann sinn.Starir þegjandi út í loftið
Já, við gerðum samning við Intrum Dúdditia
Ég skil. Þið eruð sem sagt að fabúlera með eitthvað sem þið hafið enga hugmynd um hvað er. Nýstárlegt, hmmmmmmm. Ég hélt að það væri bannað á Baggalútnum.
Blessaður vertu, það veit enginn hvað neitt er hérna.