Barir fætur fléttar
fjári eftir tári
Farir ekki sléttar
Sléttum fötin fínu
fríðir árshá-tíðum
léttum oss upp pínu
Fljóða botn ei bifa
boga listum voga
Ljóðin hérna skrifa
Skrifa ljóðið litla,
langa það að fanga,
lifa, ljúft það kitla.
Kitla fögru fjöllin
frúin orðin lúin
fitla fer við böllinn.
Bætt við einu enni og við það verður vísan klám![/g]
Best að notfæra sér að tröllið gleymdi enni.
.
Böllum sveit í sakna
sárar vel ef árar
öllum vel af vakna
Vakna ég til vinnu
Varla komin dagur
Veikur ver í sinnu
Vaknar vor og sumar
vetur sofnað getur
sakna ekki gumar
Hátt syngjum með látum
ljúfur dillar úfur
fátt við sungum gátum
(Þetta er keðja. Þú áttir að byrja á Gumar. krossgata hoppaði yfir rangt kveðna vísu.)
kei ... sorrí
Gumar gæinn af snilldinni
gott og flott
fumlaus sporðrennir síldinni
Þrískeytlan
.
Frumlína er með þrjá bragliði sex atkvæði og tvo stuða, þeir skulu vera fremst í þeim bragliðum sem best þykir þjóna bragnum.
.
Síðlína er með höfuðstaf í fremsta braglið, þrír bragliðir sex atkvæði og fyrsta orð rímar alltaf við síðasta. (mikilvægt er að fyrsta orð línu rími við síðasta)
.
Lokaorð er með þrjá bragliði sex atkvæði, má hafa tvo sjálfstæða stuðla en getur líka vel staðið stuðlalaus(sjálfum finnst mér hið síðarnefnda fallegra). Fyrsta og síðasta orð rímar við fyrsta og síðasta orð fyrstu línu/frumlínu.
.
.
Bragliðir 3 / Atkvæði 6.
.
---1-------2--------3---
-1--2----3--4----5--6-
Tra la / tra la / tra la--1
tra la / tra la / tra la--2
Tra la / tra la / tra la--3 línur alltaf 3.
.
.
Ríma saman litina
.
Tra la / tra la / tra la
tra la / tra la / tra la
Tra la / tra la / tra la
.
Seinn að fatta ...
Gumi rími ruglar
rauður litast hauður
falla niður fuglar
Næstum því. En, Gumi og Falla ríma ekki.
Hmm... ég er litlblindur á bláan.
Gumar gætu sjálfir
gælt og gert sig indælt
humar étið hálfir.
Hmm... ég er litlblindur á bláan.
Gumar gætu sjálfir
gælt og gert sig indælt
humar étið hálfir.
.
Gumar gætu sjálfir
gapið öl í lapið
humar étið hálfir
T.d. svona...Þá rennur hrynjandinn vel og komið er skiljanlegt samhengi í hnoðið...
Takk fyrir mikla bragarbót. En er þetta þá boðlegt?
Hálfu hnoði karga
má haga til og laga,
bjálfum frá sér bjarga