Hálfir tveir að heilum
hækka en ekki lækka
sjálfir ef við deilum
Takk fyrir mikla bragarbót. En er þetta þá boðlegt?
Hálfu hnoði karga
má haga til og laga,
bjálfum frá sér bjarga
.
Mjög fínt vinur. skoðum aðeins síðlínu (miðlínu)...Taka smá sér tíma í að hafa þetta svolítið fínt.
.
Hálfu hnoði karga
haglega má laga,
bjálfum frá sér bjarga
Enn kemur snillin til bjargar og gerir gott úr því sem vont var.
Deilur ekki dáum
orðin heitu forðumst
heilum sáttum náum
Enn kemur snillin til bjargar og gerir gott úr því sem vont var.
Deilur ekki dáum
orðin heitu forðumst
heilum sáttum náum
.
Þessi var nú svo fín að það tekur alveg á að vera með smámunasemi og leiðinda leiðréttingar. Höfuðstaf vantar því miður í síðlínu..„D" Það er að mörgu að hyggja minn kæri... gengur bara betur næst.
.
Deilur ekki dáum
deyðum allan leiða
heilum sáttum náum
Náum saman næstum
njótum reiðarskjótum
fráum gæðing glæstum
glæstum gæðing situr
gráum eða bláum
næstum blandast litur
(Vantar ekki gje-stuðul í fyrstu línu? Klórar sér í höfðinu)
Eftir langan dag verður gæðingur stundum að fáki. Gott að hafa vit-vörðinn með á nótunum.
Ljómar upp
Af hverju segiðru ekki Glæstan gæðing situr, þá er vísan líka málfræðilega rétt.
Nei annars, þetta er of flókið. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Litháeni lagði
leið sína til veiða.
Vitur þá hann þagði.
Þagði þessi bjálfi
þjóra vildi bjóra
lagði sig hjá kálfi
Kálfur fjósakonu
klípur brjóstin grípur
sjálfur bjó til sonu
Það er ekki oft sem menn búa til nýjan braghátt... þetta er þráður vikunar til heiðurs Heiðglyrni bragháttaskapara...
Háttinn hér mun skeytla
hressa upp og blessa
þáttinn mun ég meitla.
Meitlar skrokkinn mikið.
Megrun er það fegrun?
Seytlar lýsið svikið.
Svíkur enga sjóði
sólarljós og gjóla.
Lýkur þessu ljóði.
Prufa nú að pára
Punda smárri vísu
Rita slakann fjára