Jaðra jafna brýnir
játar glaður státar
verkið fagra sýnir
Var að átta mig á vitleysunni! Fyrsta orð í þriðju, þarf að ríma við fyrsta í fyrstu! Reyni aftur seinna. Glottir eins og fífl
Sýnir myndir sínar
selur þær og elur
rínir á þær fínar.
Nú verður að laga því ég er búinn að svara.Glottir eins og fífl
Fínar fjaðrir mínar
fljótar urðu ljótar
Línar illa hrínar
Leyfum þessu bara að standa. Var fyrsta tilraun við þetta form og ég las ekki kennslugögn Riddarans áður.
Hrínar dömur daðra
dansa eigi stansa
grína bláa jaðra.
Svona til að koma þráðnum aftur á réttan stað.
Jaðra jafna brýnir
játar glaður státar
daðra vinir fínir.
Vitlausa vísan leiðrétt. Glottir eins og api
Fínir oft til fara
fata sig og mata
Mínir lítt þá spara
Auka vild'ann aurinn
ausa fé má lausa
Bauka braut þá gaurinn
Gaurinn núna grætur
grenjar úr sér menjar
Saurinn niður lætur.
Lætur lortinn detta
lekur barma þekur
Sæt ei þessi sletta
Slettan kámar kamar
kúkur fer á lúkur
Klett má kalla hamar
Hamar þjóðar þinnar
þrætur oft um rætur
Samar eru finnar?
Æi, ég gleymdi að lesa blaðsíðu 2 í þræðinum...
Ég verð þá að bæta við á undan og eftir...
Finna oft hjá öðrum
árnar, gaman kárnar.
Vinn’að stíflujöðrum.
Jöðrum sterkum juða.
Jarðarskorpan harða
öðrum leyfir puða.
Puðar vélaverkið.
Varga gerir arga.
Suðar kaffimerkið.
Merki fögur fjöllin.
Fjúka Kárahnjúkar.
Verki fá þá tröllin.
Tröllin æða innar.
Orkar lána forka.
Köllin hræðast Finnar.
Prófa eina þrískeytlu.
Kærir latur lýður
lagabókstaf staga
hrærir í og bíður
Bíður eftir bögu
Bósa til að hrósa
Sýður saman sögu.
Sögur skulum segja
sjóðum þær í ljóðum
bögur aldrei deyja
.
Dauða til ei dæmum
dáðir andans háðar
Kauða orðu sæmum
.
Sæmi lega samið
sand á byggir andinn
Dæmi saman lamið
Lemja, logar reiðin
linnir engin vinnur
semja það er leiðin
.
Soðin eggin borða
allir ýtar snjallir.
Goðin safna forða.
Forðabúrið spillist.
Langir dagar svangir.
Morðavargur tryllist.
Trylltur jötnaskari
æðir svo úr blæðir.
Villtur fer á bari.