Bíð ég eftir blaðinu
blind- ég les það -fullur,
því bjórinn oní baðinu
barst mér inn af hlaðinu.
Hver er mjaða mestur ?
Af miði á jeg tlluf.
Bjór er allra bestur,
af bjórnum vjerð jeg rulluf !
Glottir eins og fífl
Þegar bjórsins þjórið vætir þurrar kverkar.
Reikult þá um óðal arkar
atómið og verður kvarkar.
Hann hlýtur að vera að vinna
(sko, vergjörnum frillum að sinna),
Hann allmargar á
og eitt fylgir þá:
að ég fæ ekki kónginn að kynna.
En:
Allt í heimi um skal syngja
undurfagurt lag.
Við það orðaklukkur klingja
komist þær í brag.
Um það blöðum engum er að fletta
Bíð ég, senn af bjór fæ slatta
Brátt á honum fer að smjatta.
Alltof torvelt er að semja
um allt lítinn vísnabrag
brátt ég fer því ótt að emja
um minn leiða'í heilan dag.
Er eitthvað í pípunum hjá ykkur?
Ég geri ráð fyrir að klára mótið eftir svona korter eða svo.
Yrkjum vjer um ekki neitt,
ekkert nefnum hjer.
Ekki nefna ætlum eitt
efni sem að til er.
Ekkert líkt er öllu því
allt er engu líkast.
Því er rétt að fara'í frí
og ferskeytt undan víkjast.
Hollt og kalt þú kneyfa skalt
kollum halla bjóra.
Allt er valt og úti er svalt,
- allvel svalla og þjóra.
4. Allt.
Nú vísu að vikið
viska á beit
Allt er of mikið
ekkert ég veit.
Allt er bráðum búið hér
burtu senn ég flakka.
Samveruna sýnist mér
sæma vel að þakka.
Prísum hátt og prísum vel
prinsessu mótsins góða
Regínu ég toppa tel
tonn af þjónum ljóða.
Ég tygg nú kökur, teiga mjólk
það tælir orðspors hnekki.
Kærar þakkir, kæra fólk
kærið mig nú ekki.
Kærar þakkir, þetta er búið að vera hið allra skemmtilegasta mót!
Þakkir fáið, kæru vísu vinir
sem völduð kvöldstund með mér hér að dvelja.
Fljótt þó talið fellum, kvæðahlynir,
með fleiri bögum skulum engan kvelja.
Mótslok!