— GESTAPÓ —
Hagyrðingamót í Baggalútíu
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 6, 7, 8 ... 143, 144, 145  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

kyndin sú sem slátrað var
súr er nú á fati
hefði betur verið þar
sem geltir litli snati

Áfengi er skaðlegt eiturlyf sem brýtur menn niður bæði andlega líkamlega og félagslega • Það breytir persónuleikanum og deyfir siðferðisvitundina. Það er einnig nærandi og styrkjadi , gefur hraustlegt og gott útlit og bætir meltinguna .
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Loki 11/9/06 23:00

Lund við höldum hressri, kátri,
hífum fas,
meður heilum haug af slátri
og hálffullt glas

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 11/9/06 23:00

Hehe... þetta er búið að vera stórkostlegt... ég veit ekki hversu strangur maður á að vera á tímann, en mér sýnist menn eiga nóg inni, framlengi hagyrðingakvöldið um 10 mínútur...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 11/9/06 23:01

Ögmundurinn afundinn
æstur var'ann þarna.
Grimmur yfirgaf fundinn
gæðingur sá arna.

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 11/9/06 23:02

Síðustu forvöð

1) kynning á sjálfum sér
2) Bundnir og óbundnir stjórnmálaflokkar
3) Heimspeki haustsins
4) Matareitrun
5) Hálftóm eða hálffull glös

...og sláturgerð...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 11/9/06 23:04

Gefur okkur auka stund
öðlingurin skabbi
Gefur okkur glaðan fund
gaut að okkur rabbi.

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Loki 11/9/06 23:05

Ég get ekki ort neitt meir
né átt við leir.
Kveðju mína heimur heyr;
minn hróður deyr.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 11/9/06 23:05

inn fór máltíð ósköp góð
og eðalvínin fínu
níður síðan allt það óð
úr undirgati mínu

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Offari 11/9/06 23:08

Kæri vinur þakka þér
þennan góð kveðskap
Skál því nú ég skemmti mér
skálum núna allir hér.

KauBfélagsstjórinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 11/9/06 23:09

speki um haustið heimtar þú
hún er nokkuð snúin
en það sem gerist sjáðu jú
að sumartíð er búin

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Síra Skammkell 11/9/06 23:09

Ómeti og ullabjakk
ömmur gamlar eta.
Innyfli og iðrasnakk
eg kann vel að meta.

Skammkell sýra. Æsti prestur og Guðafræðingur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 11/9/06 23:10

Hehe...já, þá er komið að því...

Slít ég mótið, slæ í borðið,
slæ á vísnahríðir
hérna var full hresst víst orðið,
hittumst þó um síðir.

Þar með er hagyrðingamót kvöldsins lokið, þakka þeim sem tóku þátt og þeim sem fylgdust með...

Tilkynning um næsta stjórnanda kemur vonandi bráðlega...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 11/9/06 23:12

Andskotinn og amma hans
aftur varð of seinn
Kveðskap býð ég kannski í dans
og kyrja alveg einn...

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 11/9/06 23:18

Bölverkur mælti:

...Þeir sem vilja taka þátt í því mega engöngu senda inn skeyti með kveðskap eftir að stjórnandi hefur gefið orðið frjálst. Eingöngu stjórnandi má senda inn vísulaus skeyti. Innsendingar eftir mótsslit stjórnanda eru óheimilar...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 12/9/06 00:00

Ég hef skoðað þráðinn og hann virðist ekki ná upp þeim anda hallærislegheita sem gerir hagyrðingamót skemmtileg. Kveðskapurinn er fínn en það vantar hallærislegar gamansögur sem hagyrðingar eru með þegar þeir kveða sér máls og segja frá einhverjum asnalegum tilvikum og enda söguna sína þá á; þá varð mér þessi vísa að orði....(sem er einatt „pönsjlænið“ í „gamansögunni“).

Sem áhorfandi mæli ég með því að skáldin hafi einhverjar slíkar sögur og spaugelsi á takteinum fyrir hverja vísu. Þá kemst besti fílíngurinn í þetta. Það er alls ekkert skilyrði að sagan eða gamanmálin séu fyndin, þau verða gott ef ekki betri því verri sem þau eru, þó vissulega séu gerðar kröfur til vísunnar.

[orð að sönnu... ég hugsa að menn muni taka þetta innlegg til greina við næsta hagyrðingamót... Skabbi]

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 14/9/06 10:06

Skabbi hefur tilnefnt Z. Natan Ó. Jónatanz sem stjórnanda þriðja hagyrðingamóts Baggalútíu.

Fyrstu tvö mótin heppnuðust gríðarlega vel, sýnist mér, en ég hugsa að þriðja mótið muni toppa öll fyrri met.

Z. Natan mun tilkynna tímasetningu von bráðar, gæti ég trúað og yrkisefnin ættu að koma stuttu síðar.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jóakim Aðalönd 14/9/06 10:10

...þá varð mér þessi vísa að orði:

Skabbi hann er skrýtinn gaur,
ég skjaldan vil því flíka.
Hefur sett á hús sitt staur,
hinum megin líka.

[Þakka þér Jóakim, en það er víst svo að þessi þráður á ekki að vera virkur nema rétt á þeim tíma sem hagyrðingamótið er og fyrir tilkynningar... Þú mætir næst...Skabbi]

Seztur í helgan stein...
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Hérmeð kunngjörist að Hagyrðingamót, hið þriðja í röðinni, er fyrirhugað
mánudagskveldið 18.09. 2006, kl 22:00.
Nánari upplýsingar síðar - en þó fljótlega. Fyrir hönd nefndarinnar -

- z n ó j -
        1, 2, 3 ... 6, 7, 8 ... 143, 144, 145  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: