Natan minn, við eigum alltaf eftir að fá okkur Béla-Rus!
Hleypur útí 10-11 tilað kaupa rjóma Hvítrússnesk skál á NG . . .
Nú eru auðvitað öll sönnunargögn þar að (Bagga)lútandi horfin, en mig minnir endilega að Enter vor hafi lofað árshátíð í september.
Það eru sönnunargögn fyrir þessu í heilabúi voru en þó grunar oss að tíminn sje orðinn of naumur þar eð á vefsíðu nokkurri í 'útlöndum' lásum vjer að Baggalútur hjeldi brátt þangað. Auk þess vonum vjer að árshátíðin verði ei fyrr en í fyrsta lagi seint í september því annars missum vjer af henni.
En gaman væri að drekka heilt ríki þar Ljómar upp og fer að reikna út hvað þurfi marga gesti á árshátíðina til að ná að drekka allt Hvíta-Rússland
Iss, það ætti ekki að vera mikið mál fyrir bumbumikinn kokk !
Sýnir öllum hvað hann getur drukkið hratt
ÉG skal glaður hjálpa til við að þamba!
Það verður ekkert úr þessari árshátíð er það?
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Þú mátt alveg hefjast handa sko...
Er ekki allt austurland að fara undir vatn ?Klórar sér í höfðinu
Þá verður bara auðveldara að fela slóðina ef allt fer úr skorðum.
Það er satt Offari, snjall ertu.
Hendir nokkrum teningum í áttina að Offara
Sönglar Þamba, bamba gættu þinna lamba Hleypur út á eftir lambinu
Ertu að reyna að freista mín? Horfir löngunnaraugum á teningana
Réttir Bjúving Durex
Í guðanna bænum notaðu þetta ef þú ert að elta lömbin.
Hrekkir Offara með teningum
Tekur Durexinn og sér hversu frábærlega teygjanlegur hann er. Tekur stein og hnýtir hann við Durexinn. Sveiflar Durexnum yfir höfði sér hring eftir hring eftir hring, hraðar og hraðar og sleppir að lokum. Sér steininn ásamt Durexnum svífa í fallegum boga í átt að höfði kindarinnar þar sem hann smellur beint í mark og kindin steinrotast
Verður þetta líka skemmtiatriði á hugsanlegri árshátíð ? Ljómar upp
Ég held að við verðum að fara að stofna Gleðifélag Gestapó því ritstjórn nennir ekki endalaust að skipuleggja skröll og böll fyrir okkur.
Munum vér Harðjaxlinn og hans hugsun úr fornu en þó framsýnu sem sá allt er augun vilja sjá og hugsaði svo stórt að enginn getur gleymt hve mikið var spáð. Verst er að svo til allur minn aur sjálfhverfzt í ákavíti þ.e.a.s. sá sem ekki fer í gagnvarp og kóbalt og Köntrí.