Hver getur án þessarar stórstjörnu frá Sandgerði verið, datt niður á þessa stórskemtilegu mynd. Verði ykkur að góðu.
http://www.youtube.com/watch?v=SHiVh-pRzFM
almáttugur! Þetta ætti frekar heima í sorpminjasafninu! Hvar er það annars núna?
Aðdáendur ískrydduðu dívunnar ættu líka endilega að lesa þetta viðtal sem tekið var fyrir rúmum tuttugu árum, þar talar hún um nákvæmlega sömu hluti og í dag.
Á hún aðdáendur? Eru þeir ekki útdauðir?
Jah, þú segir nokkuð, þetta ætti þá kannski alla vega að vera í gæsalöppum lagar fyrra innlegg
Úffffff...... þessar myndir af henni eru ekki beint kræsilegar.
skreppur á klóið til að æla
Á hún aðdáendur? Eru þeir ekki útdauðir?
Fornleifafræðingar fundu fyrir skemmstu heiðið kuml og í því var að finna muni sem gáfu til kynna
að fornmenn höfðu tilbeðið e-k ískvendi sem var haldið veruleikafirru af verstu sort.
Til að koma í veg fyrir að áhugi almennings myndi kvikna á kvensunni var öllum munum eytt og farið með hræið í efnamóttöku Sorpu þar sem því var fargað í nifteindavél, knúinni af 7000 megatonna kóbaltmótor.
Þið skuluð þó ekki vanmeta hana. Hvað ættum við að miða við sem góða tónlist ef að ekki væri til slöpp til þess að setja markið einhverstaðar.
Ég bjóst reyndar aldrei við því að verða fyrir valinu sem maðurinn sem myndi verja þessa konu.
Agalega er þetta sorglegt eitthvað....
Þetta er eins og kynskiptiaðgerð gone horribly wrong.
Þið skuluð þó ekki vanmeta hana. Hvað ættum við að miða við sem góða tónlist ef að ekki væri til slöpp til þess að setja markið einhverstaðar.
Ég bjóst reyndar aldrei við því að verða fyrir valinu sem maðurinn sem myndi verja þessa konu.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Ætli það sé ekki sannleikskorn í þessu hjá þér, svei mér þá. Þurrkar tár úr hvörmum sökum of mikils hláturs
Annars finst mér við fá uppreisn æru að láta breta þjást... svona miða við allt sem þeir hafa látið frá sér og orðið vinsælt á íslandi.
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
En þá erum við íslendingar með lélegan smekk ekki satt?
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Heyrðu vinur, átt þú ekki að vera í vinnunni að spila Minesweeper?
Aahhh hin stórkostlega Leoncie. Hún er hinn fullkomni Íslendingur. Alltaf með hugann við framtíðina, á leiðinni upp á við í lífinu. Sannarlega dægurhetja í hæsta gæðaflokki.
Annars hafði ég ekki hugmynd um að Leoncie hafi verið í hinum merkilegu Eurotrash þáttum, sællar minningar. Þetta hlýtur því að vera um 10 ára gamalt í það minnsta.
Miðað við viðtalið í Samúel, þessa 10 ára gömlu klippu og daginn í dag verður ekki tekið frá henni að hún er samkvæm sjálfri sér og það er viss huggun á þessum tímum lausungar og vitleysisgangs.
Meðan ég man. Er einhver með myndskeið þar sem hin stórfenglega Leoncie tekur þátt í svokölluðum X-factor þáttum á Englandi? Fann bara 11 sekúndna brot. Gott væri að komast yfir allt atriðið.
Meðan ég man. Er einhver með myndskeið þar sem hin stórfenglega Leoncie tekur þátt í svokölluðum X-factor þáttum á Englandi? Fann bara 11 sekúndna brot. Gott væri að komast yfir allt atriðið.
Þetta 11 sekúndna atriði var víst allt og sumt af henni.
Því miður.
Þessir bölvuðu Englendingar eru helberir rasistar og bjánar fyrir að setja ekki atriðið í heild sinni í þáttinn!
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Leoncie mun, löngu eftir dauða sinn, vera minnst sem snillings. Ekki ósvipað Van Gogh og málverk hans en vonum þó að hún skeri ekki af sér eyrað. Tónlist hennar mun lifa um ókomnar aldir og henni restir gífurlegir minnisvarðar og styttur með gylltum geirvörtum. Þá munu allir sem til hennar muna segjast hafa þekkt hana og haft hönd í bagga með að gera hana að því gífurlega menningarfyrirbæri sem hún er þá orðin. Hún verður dýrkuð sem Guð og hafa milljónir áhangenda og fylgjenda. Börn, hundar, kýr og fótboltalið verða skírð eftir henni og tískubylgja mikil, sem byggð er á fatavali hennar, mun fara sem eldur í sinu um heimsbyggðina.
Hennar tími mun koma!