Já takk mér finnst samt betra að umræður fari fram hér þegar upp koma deilur.
Þetta var nú varla deila Offari minn.
Jæja Barbapabbi. Á ekki að fara að tilkynna yrkisefni kvöldsins?
Enga hugmynd hef ég nú
hvaða þræðir verða í boði.
Barbapabbi, byrja þú
að bæta úr því svo lyftist doði.
Mágur Barbapabba (auðvitað ekki í raunheimum) sagði mér að hann væri að ríða systur sinni til óbóta. Ég efast nú um að hann nái honum upp, en ekki heldur hann hagyrðingamót á meðan hann er að rembast.
Hvað finnst mönnum annars um þær límingar á þráðum sem búið er að gera, eru menn sáttir? Er eitthvað sem ekki á að vera límt og er eitthvað sem þyrfti að líma?
Viðmiðun sem ég nota eru vinsældir þráða... þ.e. hversu mörg svör hann hefur fengið og því bætast við smám saman þræðir sem neðar eru...
Líklegir þræðir til límingar bráðlega, eru Oddhendukeðjan, Þrískeytlan og Ort um fréttina... en er ég að líma of mikið, hvað finnst ykkur?