Ég man eftir Richard Clayderman plötunum hennar ömmu heitinnar.
Fer í dauðadá
Sér fyrir sér Clayderman-plötu þar sem Rikki situr fyrir framan flygilinn, með sykurbros á vör, hálfaxlasítt timotei-sjampóað hárið og í rjómahvítri kaðlaprjónspeysu. Eltir Hakuchi í dauðadáið
Timotei-sjampó!!!
Fellur líka í dauðadá við minninguna
Ég man eftir Morgan Kane...Gefur frá sér vellíðunarstunu
Ég man þegar ég fór nokkuð reglulega í Sundhöllina og á leiðinni heim kom ég alltaf við á gamla Borgarbókasafninu í Þingholtunum(man einhver við hvaða götu) og hékk þar hálfu og heilu dagana að lesa. Eftir að hafa klárað öll Andrés-blöðin og Lukku-Láka uppgötvaði ég Bob Moran og las þær bækur í einum rykk. Aldrei leiddist mér þó svo að ég læsi Morgan Kane eða fokking Bonanza. Íhugar að falla í dauðadá en lætur sér nægja að selja upp yfir allar Bonanza bækurnar
Við Grundarstíg ef ég man rétt.
Ég man eftir "Onedin Skipfélaginu" eins og það hét í sjónvarpinu. e. "The Onedin Line" að vísu man ég afar óljóst eftir þessu....
Ég man einnig eftir Roots (Rætur) sem var til sýningar á sömu stöð. Man ögn betur eftir þeim þáttum.
Ég man líka eftir Onedin skipafélaginu og Roots af afspurn. Það var ekki komið sjónvarp á mitt heimili þá.
Ég man efir Hafnarfjarðarbrandar. Afhverju stinga Hafnfirðingar höfðinu í moldina á xxxdegi?
(man ekki hver dagurinn var)
Svarið; Þeir eru að horfa á rætur
Löðri já. Það var kallað Löður, mig rámar óljóst í það.
En ég man vel eftir Dallas. JR. Sú Ellen og Bobbý.
Ég man líka eftir Dýrlingnum og lagin sem var spilað í upphafi með ólapriks strikateikningunni. Ljómar upp
Svakalega eruð þið gömul! Það man enginn eftir dýrlingnum lengur. Nema ég.
Reyndar eru ekki mörg ár síðan Dýrlingurinn var sýndur á Sýn, þannig að m.a.s. ég man eftir Dýrlingnum.
Ég er ekki að tala um skjá einn sko Starir þegjandi út í loftið
Þetta eru samt allt nokkuð óljósar minningar, nema kanski Roots og Soap man minna óskýrt eftir því. Klórar sér í höfðinu
Það sem ég man eftir úr gamla sjónvarpinu í gamla daga voru barbapabbi og svo auðvitað auglýsingarnar sem komu bara á eftir fréttum og veðri, þar sátu Bogi og Magnús Bjarnfreðsson við skrifborð og sögðu svipbrigðalaust fréttirnar og á milli komu inn skot þar sem þeir vru með risa míkrófóna að ota þeim framan í Steingrím Hermanns eða Albert Guðmundsson. Svo kom hann Bergþór með snúningsveðurspána sína og prikið. Svo augýsingar þar á eftir sem voru bara æðislegar að mig minnir.dæsir af nostalgíu
Snúningsveðurspáin og prikið. Ljómar upp Það var miklu betri tækni en núna.
Snúningsveðurspáin og prikið. Ljómar upp Það var miklu betri tækni en núna.
Blað og blýantur eru tól sem ég man eftir og hafa reynst mér vel allt til dagsins í dag. Það parið hrynur ekki, virkar í rafmagnsleysi, smitast ekki af vírusum og svo má lengi telja.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið