Hér getum við röflað ein og vindurinn um þá gömlu góðu...
Innblásturinn að þessu var öðlingurinn hann Skabbi
þetta verður erfiðara en í gamla daga... byrjar að röfla um gamla daga
Ég man annars eftir því þegar hann Skabbi hvarf. Það var skuggalegur tími... Röflar um gamla daga
Ég man þegar Gvendur Skrítni leit öðruvísi út
Dæsir
Æh, já, ég var svo myndarlegur í þá gömlu góðu - en þessir sumarmánuðir lögðust bara alveg svakalega illa í mig og hárið gránaði bara á einu bretti.
Ég líka, en mér finnst þessi breyting til mikilla bóta. Það er akkur að þeim manni er sést á nýju myndinni. Hann á eftir að reynast Baggalútíu ómetanleg mannleg auðlind.
Wilkommen, Doktor Merkwurdigliebe!
Missti allt hárið í sumarleyfinu.
Ég missti bakheilsuna í sumarfríinu
Getur fengið smá hjá mér.
Ég á nóg.
Ég líka, en mér finnst þessi breyting til mikilla bóta. Það er akkur að þeim manni er sést á nýju myndinni. Hann á eftir að reynast Baggalútíu ómetanleg mannleg auðlind.
Wilkommen, Doktor Merkwurdigliebe!
Þakka þér, ég læt þá eins og heima hjá mér bara. En það væri fínt ef þú myndir spara þýzkuna í framtíðinni, annars halda allir að ég sé Derrick á yngri árum
Vjer munum er hvorki Baggalútur nje Gestapó var til.
Finnst Vlad vera afskaplega gamall að muna svo langt
Já í gamla daga, ég man þegar ég var að hérna... já... ummm... það var um morgun einn að ég... hérna... já ummm... Gefst upp og byrjar að röfla um framtíðina... þá keyra menn um á svifnökkvum og sigla á dráttarvélum um ballarhafið... bátar munu fljúga um himingeyminn og erfðabreyttar engisprettur munu þykja gómsætt hliðarnasl í hlíðum Esjunnar...
Ég man þegar ég var ungur og menn vissu það sem þeir vissu og konur gerðu það sem þær gerðu og strákhnokkar óhlýðnuðust í óþekkt sinni og stúlkuskottur voru elskulegar á sakleysislegan hátt. O-sei-sei, það var sko tíðin.
En einnig man ég eftir því þegar ég hafði raunverulega trú á framtíðinni og mér virkilega fannst fullorðið fólk skilja heiminn. Nú er tíðin önnur. Jedúddamía hvað tíðin er orðin önnur.
Mylur það mesta úr klútnum og smellir svo einni blautri ofaní, svona rétt til að halda þyngdinni
-
Ég man þá tíð að Baggalútur var í sumarfríi...
Ég man þá tíð að 48 kílóbæt þótti feikinóg fyrir hvern sem er.
Síðar var það víst hækkað í 640 kílóbæt. Nú í dag er það varla nóg til að halda einum skjáglugga í minni.
Er það ekki vegna þess að ekki eru lengur í hávegum höfð þau gömlu góðu sannindi að 8 litir séu allt sem þarf.
Ég man eftir victor tölvunni minni, 30 mb harður diskur starir dreyminn út í loftið
Vjer munum eftir Sinclair Spectrum tölvu vorri, enginn diskur Ljómar upp.