Leikurinn byrjar á að einhver segir t.d. "Réttið upp hönd ef þið eruð í sokkum". Svo rétta allir upp hönd sem eru í sokkum. En ef gestapói er ekki í sokkum skal hann byrja upp á nýtt og búa til nýtt. En sá sem býr til "réttupphönddótið" á að geta rétt upp hönd við sitt. Ef ég segi "réttið upp hönd ef þið eruð í sokkum" þá verð ég að vera í sokkum.
Jæja ég pant byrja.
Réttið upp hönd ef þið eruð með flensu.
réttir upp hönd
En hún er í rénun
Haha ég er ekki í sokkum!
Ljómar upp
Réttupphönd sem finnast færeyingar góðir!
Leikurinn byrjar á að einhver segir t.d. "Réttið upp hönd ef þið eruð í sokkum". Svo rétta allir upp hönd sem eru í sokkum. En ef gestapói er ekki í sokkum skal hann byrja upp á nýtt og búa til nýtt. En sá sem býr til "réttupphönddótið" á að geta rétt upp hönd við sitt. Ef ég segi "réttið upp hönd ef þið eruð í sokkum" þá verð ég að vera í sokkum.
Jæja ég pant byrja.
Réttið upp hönd ef þið eruð með flensu.
Já ok.. fine. En ég er ekki heldur með flensu.
Endurtekur færeyingaspurninguna
Réttir upp hönd
Réttir upp önd
Vann ég eitthvað?
Færeyingar eru góðir
Réttir upp hönd
ÚTSTRIKAÐ
Mátt ekki spurja Þarfi nema þér finnist færeyingar vondir
Reglur, reglur, reglur ...
þær eru bara fyrir fylgisauði.
Ég lagaði samt til að hafa þig góða.
Réttupphönd sem finnast færeyingar góðir!
Mér þykja þeir ekki góðir (það þarf reyndar allsekki að þýða að þeir séu vondir...) & reyndar er ég ekki með flensu, & er heldur ekki í sokkum. Án þess að það komi málinu beinlínis við.
---
Nú. Bítur í grillaða samloku Þá er best að allir þeir sem eru að borða, á því augnabliki sem þetta er lesið, rétti upp hönd.
Var að enda við að klára, en rétti samt upp hönd því það mjóaði svo munu.
Réttir upp hönd
Hah! Ég er ekki að borða.
Rétt upp hönd allir þeir sem eru blautir!
ATH!
Ég vil ekki vita hvar/hvernig/hversvegna þið eruð blaut. Haldið svoleiðis persónu upplýsingum hjá sjálfum ykkur.
Hryllir sig
Ég er ekkert blautur! Fagnar gríðarlega
Allir sem eiga frí um helgina að rétta upp hönd! Réttir næstum upp hönd Er sjálfur að vinna oggulítið....
Þá er þetta reyndar ekki gilt hjá þér Ewing, ef ég skil leikreglurnar rétt . . .
Já.. þú mátt ekki segja þetta ef þú ert að vinna hmm ha?
Hnyklar brúnirnar
Best að ég komi þá með eitthvað fyrst að þetta var ógilt á Bjúving, enn þess ber að geta að ég er hvorteðer ekkert að vinna (þó svo að ég verði ,,upptekinn'' af öðrum ástæðum).
Rétt upp hönd sem er í nærbuxum!
Aðalspursmálið er hvort þú hafir verið blautur eður ei á því augnabliki sem þú varst að skrifa. Þetta verður þú eiginlega að taka fram, því ef það er ekki á hreinu er þitt innlegg einnig ógilt (held ég).