Hermann Hreiðarsson.
í kynningu útgefanda á bókinni Hamingjusami maðurinn og vörubíllinn hans, sem er 51. bókin í hinni þekktu ritröð Skemmtilegu smábarnabækurna, segir: Sagan sýnir okkur hvernig lífsglaður og hamingjusamur maður getur, með litlu viðviki, glatt samferðamenn sína .
Gaf hann þeim far á vörubílspallinum?
Ekki var það rangt en svarið er heldur ekki fullnægjandi.
Það er ansi langt síðan ég hef séð þessa bókLjómar upp
Tengist þetta eitthvað að sturta úr bílnum ?
Hvæsi: ég svara þér alveg eins og ég svaraði Regínu. Nú er þetta orðið auðvelt.
Hann bjó til rennibraut úr vörubílnum þegar morrinn kom og skemmdi róluvöll barnanna?
Nú hefur hann Billi minn gleymt að taka lyfin sín.
Afstýrði hann einhverju vissu með því að nota vörubílinn?
Hann skutlaði öllum krökkunum í skólann þegar skólabíllinn bilaði?
Hann hjálpaði öllum dýrunum að komast á bóndabæinn.
Blöndungur: nei
Billi: nei
Nermal: ekki beinlínis.
Sko, nú eigið þið bara að geta leyst þetta út frá kommetum mínum á framkomin svör og það þótt þið hafið aldrei séð þessa frábæru bók.
Hann skutlaði öllum dýrunum í sláturhúsið ?Klórar sér í höfðinu
Hann fór með öll börnin á pallinum í dýraskoðunarferð?
Hann ók yfir börnin á vörubílnum sínum, enda var hann meira illari en Skeletor.
Hann lét heyrast í bílflautunni.
Já, líka það. Þetta er biti í púslið.