Portúgal - Rio De Janerio (hvernig sem það er skrifað...) - Brasilía. Spánverjar voru e-ð að ibba gogg minnir mig.
Brazilíuborg?
Nei, þetta er fyrsta höfuðborg Brazilíu og var það til 1763 þegar Ríó tók við þeim titli sem hún hélt svo til 1960, þegar hin tilbúna Brazilíuborg var fullgerð.
Fyrsti höfuðstaður Brasilíu mun hafa verið Sao Salvaor de Bahia, oft kölluð Bahia, ég kannast ekki við að hún hafi gegnt hlutverki sem höfuðborg Portúgals. Hins vegar þá var Rio de Janeiro höfuðborg portúgalska heimsveldisins í Napóleonsstríðunum þegar Frakkar lögðu Portúgal undir sig og konungur og ríkisstjórn sigldu til Ríó og sátu þar næstu 12 til 15 árin.
Jú, Salvador var alltsvo fyrsta höfuðborg Brazilíu, en í þá daga var Brazilía aldrei fullvalda ríki. Það var svo seint sem 1807 sem konungsfjölskyldan flúði Portúgal og gerði Ríó að höfuðborginni, sem þá var höfuðstaður Brazilíu, sem var nýstofnað sem ,,varakonungsríki". Þetta voru sumsé mistök af minni hálfu. Goggurinn er hér með beðinn afsökunnar og á hann réttinn skuldlaust.
Skál!
Ekki málið elsku frændi. Æ skrambinn, nú þarf ég víst að spyrja...
Jæja, hér kemur ein.
Hvaða dag á hvaða ári hófst kreppan mikla í Ameríkunni með brotlendingu verðbréfamarkaðarins? Og á hvaða degi vikunnar hrundu ósköpin yfir?
Vissulega rétt ár en dagsetningin er röng.
Nei, annars, var það ekki einmitt í október? 30. október?
Það var alla vega Black Thursday þegar það byrjaði.
Eftir að hafa skoðað dagatalið, getur 30. október ekki hafa verið hinn svarti fimmtudagur. Ég gizka þá bara á daginn í dag: 24. október 1929. Það var alla vega fimmtudagur...
Síðasta ágiskunin er rétt, þetta var einmitt fyrir sléttum 77 árum, 24. okt 1929. Ég sá þetta í „On this day...“ kaflanum á Wikipedia þegar ég var að leita af spurningu. Jæja frændi, spurðu nú!
Stekkur hæð sína
Hvað heitir stærzti steinn í heimi og hvar er hann staðsettur?
Hann er staddur í Ástralíu en nafnið verður einhver annar að koma með.
Er það ekki Steinn Ármann.... hann er allaveganna assgoti feitur.