Potar í nefið á Kargi
Þarf að hlaupa á leik dagsins þannig að ein létt hérna.
Hvert er millinafn Hómers (fullt nafn, ekki upphafsstafur)?
Potar í bumbuna á Hvæsa. Laukrétt.
Allir að horfa á B.Ewing í sjónvarpinu á laugardagskvöldið.Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Afhverju er Abe "Grampa" illa við jólasveininn ?
Af því að hann hélt að hann hefði yfirgefið sig á sínum tíma á eyðieyju með Monty Burns. Sannleikurinn var sá að hann gleymdi bara að sækja hann þar sem hann hrapaði á Tahiti þar sem hann á nú 15 eiginkonur.
Jæja, hvað heitir nágrannakona Simpson fjölskyldunnar (ekki Maude Flanders) og hvað heitir dóttir hennar?
Nágrannakonan er Ruth Powers og dóttir hennar heitir Laura.
Rétt hjá brjálaða demantinum.
Réttir Önnu Stroganoff á fati
Áttu nokkuð kartöflumús með þessu?
Lagið Sugar, sugar með The Archies hefur tvisvar komið fyrir í Simpsons (a.m.k. svo ég muni), í hvaða þáttum?
(Ath. það er nóg að lýsa atriðunum sem lagið kemur fyrir í...)
klórar sér í höfðinu Hlustaði Hómer ekki á þetta lag í vasadiskóinu sínu þegar hann (ásamt öðrum) var skipreika á gúmbát? Og hitt skiptið gæti verið þegar hann í dagdraumum sínum heimsótti súkkulaðilandið (í þættinum þegar þjóðverjar keyptu kjarnorkuverið). Annars er ég bara ekki viss.
Þú ert kominn hálfa leiðina að svarinu Kargur minn kæri, það er rétt að Hómer hlustaði á þetta þegar hann var fastur á fleka úti á ballarhafi í félagsskap Flanders.
Ég skal gefa það upp að í hitt skiptið var lagið spilað undir loka-kreditlistanum, aðalumfjöllunarefni þáttarins telst vera fullgilt svar...
Ég held að það þurfi að gefa svarið upp. Ég man þetta alla vega ekki.
Ok, ég skal alla vega gefa vísbendingu sem kveikir kannski á einhverju hjá einhverjum; þátturinn fjallaði að miklu leyti um sykur...
Bíddu við, var þetta þegar Hómer fann sykurflutningabíl oltinn úti í vegkanti og hann mokaði heila hrúgu í bílinn sinn og fór með heim? Svo varð hann geðveikur við að reyna að verja hauginn fyrir fólki og býflugum, ef ég man rétt...
Ah nei, þetta var hinn þátturinn sem fjallaði um sykur... (eða kannski réttara sagt skort á sykri)