Bætir frasa þrefið þras
þæfir brasið karla.
Kætir fasið görótt glas
ginið dasar varla.
Varla dasar ginið glas
görótt fasið kætir.
Karla brasið þæfir þras
þrefið frasa bætir.
Skálar fyrir Skabba xT
Kátur gamall hundur hét.
hans nú græt með tárum.
Hlátur lyf og glundur get
gert nú úr'ans hárum.
Hárum úr'ans gert nú get
glundur lyf og hlátur.
Tárum græt með Hans nú hét
hundur gamall kátur.
Maður góður aldrei ann
arga lígi ræða.
Glaður fróður kvergi kann
klækja stígi þræða.
---------------------------
Þræða stigi klækja kann
kvergi fróður glaður.
Ræða lígi arga ann
aldrei góður maður.
( Þessi er gömul en bísna góð)
Ákvað að setja þetta inn hér líka lítillega breytt
Hestur góður, tæpast telst
trunta og lúðulaki.
Bestur. Ekki knapi kvelst
klársins víst á baki.
----
Baki á víst klársins kvelst
knapi. Ekki bestur.
Lúðulaki og trunta telst
tæpast góður hestur.
Svartur krúnkar hrafninn hátt
hamra situr kletta.
Bjartur svanur dansar dátt
dansinn fjaðrabretta.
Fjaðrabretta dansinn dátt
dansar svanur bjartur.
Kletta situr hamra hátt
hrafninn krúnkar svartur.
Glaður hrópar Skabbi: Skál!
skenkja Lútsins bræður.
Þvaður verður mergjað mál
mannsins brengla ræður.
Ræður brengla mannsins mál,
mergjað verður þvaður.
Bræður Lútsins skenkja skál,
Skabbi hrópar glaður.
Það er sérstakt gleðiefni að sjá hér vorn forna félaga, venna vin. Komdu ævinlega fagnandi, & sem oftast !
Nú má ég tilmeð að prófa líka að sléttubandast:
Dyggðir þekki. Varla vegi
vizku smána, hörða.
Hygðir ljótar elska eigi.
Iðrast minna gjörða.
- Ellegar -
Gjörða minna iðrast eigi.
Elska ljótar hygðir.
Hörða smána vizku vegi.
Varla þekki dyggðir.
Biluð sjálfsgagnrýni:
Geta bara illa ort
auka sjálfin fínu.
Freta hérna ljótum lort
lykt þá veldur pínu.
Vertu aðeins víðsýnni og þá gengur hún upp. Bilið er ekki þarna að ástæðulausu í fyrri hlutanum og svo er þessu snúið við í heilum kveðum í seinni hlutanum.
Ekki, Væni-Grétar góður,
- geng ég að því vísu -
Skrekki varð á ljóða-ljóður.
Ljúfa gerði vísu.
sem verður óttalegt stagl ef því er snúið við -
Vísu gerði ljúfa. Ljóður
ljóða varð á Skrekki.
Vísu að því geng ég góður.
Grétar-Væni ekki.
Lokað úti nánast, nei,
nokkuð fráleitt harla;
þokað fáum engu, ei,
aldrei, trauðla, varla.
Jæja, þetta tók tvær vikur:
Síst ertu drottinn dauður,
drottinn þú ert minn.
Víst ertu öreiga auður,
akur er lífsins þinn.
Þinn lífsins er akur auður,
öreiga ertu víst.
Minn ert þú drottinn dauður,
drottinn ertu síst.
Sléttum bregðum böndum,
braginn fléttum.
Réttum stoðum stöndum,
styrkum, þéttum.
Tekur ofan og klappar